Beint á blogg

Til sölu veghefill.

Höfum fengið til sölu þennan kranabíl. Jarðýtan er í góðu lagi og getur fylgt henni auka tönn til að festa á steypubílinn.
Við viljum fá 200 þúsund tannbursta fyrir snjósleðann.
Hafið samband í blómapott 2345643
Fréttastofa MBL.is.

Íslenskir vísindamenn þróa ofurrafhlöðu fyrir farsíma

Ofurvísindamennirnir Fanney Frisbæk og Þorsteinn Ingi Sigfússon (betur þekktur sem faðir íslenska vísindasamfélagsins (og bróðir Árna bæjó)) hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru í þann mund að bylta farsíma- og raftækjatækni eins og við þekkjum hana í dag með örsmárri ofurrafhlöðu.

Vogaskóli rafhlöðuvæðist

Vogaskóli verður fyrsti íslenski skólinn til að rafhlöðuvæðast, en á þriðjudag verða keyptar rafhlöður í öll segulbandstæki skólans í tilraunaskyni. Þá verður hægt að hlusta á kennsluefni hvar sem er án þess að notast við innstungur sem vanalega eru hvort sem er fullar af hleðslutækjum fyrir síma nemenda.

Nýleg rannsókn: Breytir öllu: Og af einhverjum ástæðum eru blaðamenn Pressunar fyrstir með fréttirnar

Mikilvægar upplýsingar voru fyrst að koma í ljós núna eftir umfangsmikla rannsókn einhverstaðar erlendis sem fréttamiðillinn Pressan.is greinir frá.

Ísland tilraunasvæði nýrrar greiðslutækni

Afskriftir munu innan skamms leysa hið hefðbundna kennitöluflakk af hólmi sem almennur greiðslumáti, með innleiðingu nýrrar bankatækni.

Regluruglið í ESB: Börn mega ekki nota lásboga

Börn yngri en átta ára í ríkjum Evrópusambandsins mega ekki leika sér með lásboga án þess að vera undir eftirliti frá foreldrum eða forráðamönnum. Það var nefnd innan ESB um öryggi sem lagði þessa tillögu til og var hún samþykkt fyrir helgi.

Facebook gerir njörðum kleift að eignast vini

Samfélagssíðan Facebook hefur nú heldur betur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Svo virðist sem að síðan geri njörðum og ófélagslyndum lúðum, auðveldara fyrir að eignast vini.

Ræddu um að banna tilraunir á lukkudýrum

Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum ræddu í seinustu viku um vísindatilraunir á lukkudýrum. Á Íslandi og í Evrópusambandinu voru rannsóknir og tilraunir á lukkudýrum bannaðar eftir að mörgæsin Georg og Bingó-Bjössi drápust við grunsamlegar aðstæður.

Páll seldur, Íslandi borgið!

Dánartíðni Íslendinga hefur um nokkurt skeið verið aðalrannsóknarefni indversks rannsóknarteymis. "Ísland er þægilega stór eining og mjög vel afmarkað og hentar því vel í rannsóknir af þessu tagi" segir talsmaður vísindamannanna.

Telja Guðmund Steingrímsson hafa afsannað afstæðiskenninguna

Vísindamenn telja sig hafa fundið eitthvað sem fer hraðar en ljósið. Komumst þeir að þeirri niðurstöðu eftir að hafa fylgst með Guðmundi Steingrímssyni skipta um stjórnmálaflokka. Sé uppgötvunin rétt, er afstæðiskenning Alberts Einstein þar með fallin.