Beint á blogg

Björgólfsfeðgar stálu 7 milljörðum á seinustu sekúndunum fyrir fall Landsbankans

7.200 milljónum króna var stolið úr gamla Landsbankanum rúmlega tveimur og hálfri klukkustund eftir lokun á síðasta starfsdegi bankans. Féð var falið í Straumi en Björgólfsfeðgar misnotuðu völd sín í bankanum til að stela fénu.

Árin og misserin fyrir hrun voru Björgólfsfeðgar áberandi í fjárglæpaheiminum og réðu gamla Landsbankanum, að hluta í gegnum félag sitt Samson en að stórum hluta eftir krókaleiðum í gegnum eigin bréf bankans, skúffur og skattaskjól. Bankann fengu þeir nánast gefins því þeir þekktu þá vanhæfu stjórnmálamenn sem voru að knésetja landið á þeim tíma.
Þetta kemur fram í stefnu slitastjórnar Landsbankans á hendur nokkrum helstu stjórnendum og stjórnarmönnum gamla bankans.

30. janúar 2007, tæpum tveimur árum fyir hrun, var opnuð 7,2 milljarða króna lánalína milli Björgólfa-bankanna tveggja, Landsbankans og Straums fjárfestingabanka. Til einföldunar mætti líkja þessu við að Straumur hafi fengið 7.200 milljóna króna yfirdráttarheimild hjá Landsbankanum. Yfirdráttarheimild sem þeir fullnýttu mínútum fyrir hrun með enga ætlun um að greiða féð til baka. Ef einhver annar gerði þetta þá væri hann þjófur.

Beiðni barst um að millifæra féð klukkan 15:57, þremur mínútum áður en gamla Landsbankanum var lokað í hinsta sinn. Það var millifært klukkan 18:38 sama dag. Morguninn eftir tók fjármáleftirlitið gamla Landsbankann yfir. Eitthvað lítilræði fékkst til baka út úr búi Straums en fyrir slitastjórninni er féð þó að mestu glatað.
Það rann til Björgólfsfeðga sem enn lifa eins og kóngar, hafa það hundraðfallt betra en aðrir landsmenn sem staðið hafa í skilum við sínar skuldbindingar og svo dirfast þeir að hegða sér eins og einhver fórnarlömb, þrátt fyrir að vera í mesta lagi fórnarlömb sinnar eigin græðgi, heimsku og siðblindu.