Beint á blogg

25 mínútur og 23 sekúndur að setja á sig trefil

Eiríkur Örn Norðdal gerir trefla að umtalsefni á bloggi sínu á Smugunni. Hann er ósáttur við að treflar séu prjónaðir og seldir án þess að miðja þeirra sé sérstaklega merkt en það gerir það að verkum að mjög erfitt er að hafa endana jafn langa.

Sjálfur á Eiríkur trefil sem hann þarf að fletja út á jörðinni og brjóta saman eftir kúnstarinnar reglum til að finna miðjuna. Sé það ekki gert er trefillinn skakkur og útlitið ónýtt.
Til að sýna fram á hvað treflaframleiðendur geri hlutina óþarflega flókna setti hann skeiðklukku í gang og að hans sögn tók það 25 mínútur og 23 sekúndur að setja á sig trefilinn þannig að hann væri sáttur við niðurstöðuna.

„Svo er það tíminn sem það tekur að stilla hattinn af rétt þar sem ekkert hallarmál er innbyggt í hann. Sennilega fleiri klukkustundir á viku..,“ skrifar Eiríkur.