Beint á blogg

300 starfsmönnum Vodafone gert að yfirgefa vinnustaðinn eftir að kamrar fyrirtækisins fóru að leka

Starfsmenn Vodafone voru í mikilli hættu þegar kamrarnir í húsinu fóru að leka og fleiri hundruð lítrar af þvagi streymdu um ganga byggingarinnar.

Vilja banna fóstur í matvælum

Ríkisstjórnin kynnti í gær nýtt frumvarp sem bannar notkun eyddra fóstra í matvælum. Er þetta liður í að herða eftirlit með matvælaiðnaðinum en komið hefur í ljós að eftirlit er nánast ekkert.

Ögmundi hrósað í sturtunni

„Hann kom bara að mér í sturtu og sagði: Ó, guð, vá, þetta er svo flott. Maður er búinn að pæla svo mikið í þessu.,“ segir Ögmundur Jónasson í samtali við DV um frekar furðulega reynslu sem hann varð fyrir í sturtuklefanum í World Class í Laugum á dögunum.

Kona varð að athlægi eftir að hafa mætt órökuð í sund

Kona á þrítugsaldri vogaði sér að mæta órökuð í sund í sundlaug Kópavogs í gær, mánudag og var flæmd í burtu af hneyksluðum kynsystrum sínum.

Hætta dreifingu á Negraís

Dreifingu á Negraís frá Emmessís hefur verið hætt vegna harðra viðbragða neytenda. Kvörtunum hefur ringt inn til framleiðandans sem íhugar nú alvarlega að stöðva framleiðslu vörunnar til frambúðar.

Algjör niðurlæging Íslands

Ísland drullutapaði gegn Norðmönnum, 32:4, í D-riðli Evrópumóts karla í handknattleik í Millennium-höllinni í serbneska bænum Kurva í kvöld. „Þeir spiluðu eins og þeir væru í bleyju,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Guðmundur Guðmundsson, eftir leikinn.

Niðurskurður hjá velferðarráðherra

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, hefur ekki farið varhluta af niðurskurði í ráðuneyti sínu en hann fór í aðgerð á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í gær og var botnlangi hans fjarlægður, enda var hann farinn að bólgna út langt umfram fjárhagsáætlun.

Enn eitt hneykslið - Landspítalinn notaði iðnaðarheróín í staðinn fyrir morfín í sparnaðarskyni

Landspítalinn hefur notað og dreift iðnaðarheróíni í staðinn fyrir morfín hér á landi í að minnsta kosti 6 ár. Landlæknisembættið heimilaði sölu á umframbirgðum af heróíninu sem náðist ekki að klára á jólaskemmtun tollvarða í fyrra þótt það sé brot á eiturlyfjalöggjöfinni. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur er mjög ósátt við málið.

Björgvin Páll brotnaði niður þegar hann frétti að Ölgerðin hefði selt iðnaðarsalt í 13 ár

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta, brotnaði algjörlega niður á æfingu eftir að í ljós kom að Ölgerðin hefði verið að selja iðnaðarsalt til matvælaframleiðslu. Þetta hefur Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfest við Vísi.

Snjóhreinsun á Ísafirði gengur hugsanlega of langt

Á Ísafirði hefur snjór legið svo lengi á jörð að til vandræða horfir sökum óhreininda í snjónum. Börn hafa pissað í snjóinn, bílar hafa spænt upp baneitraða malbikstjöru sem blandast við snjóinn og til að bæta gráu ofan á svart (í bókstaflegri merkingu því snjórinn er víða svartur af skít) eykst tvívetnismónoxíðmengun í snjónum hröðum skrefum í hvert sinn sem rignir (sem reyndar gerist nær aldrei þarna norður undir heimskautsbaug).