Beint á blogg

Hætta dreifingu á Negraís

Dreifingu á Negraís frá Emmessís hefur verið hætt vegna harðra viðbragða neytenda. Kvörtunum hefur ringt inn til framleiðandans sem íhugar nú alvarlega að stöðva framleiðslu vörunnar til frambúðar.

Tvær nýjar ístegundir komu á markað í síðustu viku en önnur tegundin er einungis fyrir negra og hin er einungis fyrir fólk frá asíu og kallast Grjónaís. Samskiptasíður á netinu loga nú vegna markaðssetningunnar og hefur framleiðandinn, Emmessís, verið sakað um að ýta undir kynþáttafordóma

„Við ræddum þetta mikið á fundi og fólki fannst þetta fyrst og fremst vera góður húmor og kannski var verið að benda á hvað það er búið að ritskoða allt," segir Leifur Grímsson, markaðsstjóri hjá Emmessís.

Leifur segir starfsfólk Emmessís ekki hafa búist við þeim hörðu viðbrögðum sem markaðssetningin hefur vakið þar sem nokkrar vörur á markaði hafi verið markaðssettar á svipaðan hátt. Tölvupóstum frá reiðum neytendum rignir nú inn til fyrirtækisins.