Beint á blogg

Sjötta fundi Mannanafnanefndar lokið - nafnið Sigrún bannað

Mannanafnanefnd hittist í eftirpartýi í kjallaraíbúð á Hverfisgötu aðfaranótt sunnudags. Þar munu ný nöfn hafa verið rædd og einhver gömul tekin úr umferð vegna ósættis á meðal nefndarmanna.

Rétt upp úr klukkan 05.00 var Eiríkur Ketilsson, formaður mannanafnanefndar, nýbúinn að setja fundinn þegar Sigrún Karlsdóttir, ritari, velti flösku Eiríks um koll og síðasti dropi Eiríks endaði á gólfinu. Við þetta æstist Eiríkur mjög og rak Sigrúnu umsvifalaust úr nefndinni og út úr húsinu.
Ekki nóg með það heldur þá ákvað Eiríkur að taka nafnið Sigrún úr umferð og var það samþykkt með 4 atkvæðum gegn 1 þar sem Sigrún ritari hafði verið með dólgslæti fyrr um kvöldið og þóttu nefnarmönnum þetta ágætis lausn á þeim málum.

Þær konur sem bera nafnið Sigrún fá því senda tilkynningu á næstu dögum, þess efnis að nafn þeirra hafi verið lagt niður og þær vinsamlegast beðnar að taka upp nýtt nafn.

Eftirfarandi nöfn voru samþykt á fundinum: Heydrepill, Gegnvotur, Svigrún, Saft, Þemilmákur, Kerti og Hvítlaukur.

Þessi nöfn voru tekin úr umferð: Sigrún, Karl og Þorsteinn.

Ætla má að eignarnafnið Karl hafi verið tekið úr umferð til að svekkja Sigrúnu aðeins meir en mannanafnanefn er oft á tíðum mjög barnaleg.

Þess má geta að samkvæmt Já.is er Sigrún Karlsdóttir nú skráð sem Svigrún Heydrepilsdóttir.