„Lúxussnjóhús“ hrundi
Snjóhús hrundi við Smiðjugötu á Ísafirði í gær. Snjóhúsið hafði vakið mikla athygli frá því að það var reist milli jóla og nýárs en það var mjög veglegt enda notað sem íbúðarhús.
Byggingarmeistari þess, sem jafnframt er umhverfisfulltrúi Ísafjarðarbæjar, segist svekktur yfir því að húsið sé hrunið því að mikil vinna hafi verið lögð í það og um sérlega umhverfisvæna byggingaraðferð sé að ræða.
„Þetta var nú bara til sparnaðar gert enda snjór miklu ódýrari en steinsteypa auk þess sem um náttúrulegt byggingarefni er að ræða. Sjálfur var ég hissa hvað þetta hrundi fljótt en fyrir helgi var allt í lagi. En svo kom allt í einu rigning sem gerist nær aldrei svona nálægt heimskautsbaug og ég náði ekki nógu fljótt að breiða plast yfir húsið og fá mér kælibúnað. Ég er rosa fúll út í Veðurstofuna fyrir að vara mig ekki nógu fljótt við rigningunni. Í gærmorgun var húsið bara hrunið og ég allt í einu heimilislaus. Hvar er skjaldborgin um heimilin? Og hver á að moka allan snjóinn? Er það ÉG?""




