Beint á blogg

Eiríkur

Sá eða sú sem setti allar kellingar landsins á hliðina með H&M djókinu sínu á skilið fálkaorðu. Djók að mínu skapi.

Sveinbjörn

Jæja, búið að redda næstum því öllum pökkunum til að Jésúbarnið éti nú ekki einhvern sem mér þykir vænt um.

Óli

þegar pólverjarnir eru farinir að tala um að koma sér til noregs... er þá ekki málið að slökkva bara á eftir sér?

Jóla Óskar

Sat í bílnum fyrir utan Hörpuna og var á leiðinni í Geysi, ég gat enganveginn munað hvar hún var og á þeim þremur sekúndum sem ég var að reyna að hugsa það glumdi auglýsing í útvarpinu: "Þú færð ullarvörurnar í Geysi, Skólavörðustíg 16."

Mind = Blown!

Steinríkur

Sannleikurinn.com og Útvarp Saga eru algjörar andstæður.
Á öðrum staðnum eru ekkert nema fyllibyttur og vitleysingar sem halda að þeir viti betur en allir aðrir. Þeir taka sig alvarlega en flestir heilvita menn vita að það er ekkert að marka þetta fólk.
Hitt er útvarpsstöð.

Jón Bjarnason í morgun

"...þið talið um veika stöðu mína, sem er sterk"

Sigþór

gef engann afslátt af sannfæringu minni ... hún fer alltaf til hæstbjóðanda.

Tyrannosaurus Kex

Eruð þið ad segja mér ad Kínverji sé að fara sprengja ríkisstjórnina?

Sigurður

Ég er að pæla í að byrja að ganga með lottó tölur síðustu viku á mér svona ef ég skildi óvart ferðast aftur í tíman.

Jóhann

Það er svolítið erfitt að ákveða hjá hvaða banka maður á að opna reikning hjá. Hvaða glæpamönnum treysti ég best, til að stela aurunum mínum minnst?