Beint á blogg

Meirihlutaviðræðunum slitið í Kópavogi

Meirhlutaviðræðum Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna í Kópavogi var slitið í gær eftir að Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, mætti ekki í afmælið hjá bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Nú vantar bara herslumuninn - Við munum tvöfalda bensínverðið

„Ég vil sjá að arfleifð þessarar fyrstu meirihlutastjórnar vinstrimanna verði að hún kláraði málin, kláraði kjörtímabilið, kláraði stóru verkefnin,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í setningarræðu sinni á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar. Yfirskrift fundarins er „Forgangsverkefni í eyðileggingu landsins."

Hundur gengur í Hreyfinguna

Mastiff hundur að nafni Brjánn hefur verið ráðinn starfsmaður Hreyfingarinnar. Brjánn sem lengi hefur verið viðriðinn starfsemi flokksins er mikill aðdáandi hreyfingar almennt og kemur sem ferskur blær inn í kjarna flokksins á örlagatímum.

Stefnir í framboð 39 flokka

Það kann að fara svo að stjórnarmyndun verður flókin eftir næstu þingkosningar þar sem 39 flokkar hafa tilkynnt eða hafa gefið út yfirlýsingu um líklegt framboð sitt, þótt auðvitað sé alltof snemmt að ræða það á þessari stundu.

Þjóðkirkjan fær einkarétt á kærleikanum™ og fyrirgefningunni™

Eins og allir vita eru nú liðnir 3 mánuðir frá því að Þjóðkirkjan fékk opinbert einkaleyfi á uppfinningunum kærleikanum™ og fyrirgefningunni™ á Íslandi og er nú öllum bannað að nota þessar uppfinningar nema undir handleiðslu hennar.

Sjálfstæðismenn vilja ekki fjármálaeftirlit enda sýndi bankahrunið fram á að það væri óþarfi

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd hafa óskað eftir að rannsókn fari fram á starfsemi Fjármálaeftirlitsins og fjárþörf þeirrar stofnunar. Telja sjálfstæðismenn of miklu fé varið í eftirlit og rannsóknir enda reyndist eftirlitsleysi okkur vel fyrir hrun.

Ráðherra Schrödingers - Er Jón Bjarnason ráðherra eða ekki?

Eðlisfræðitilraun íslenskra vísindamanna hefur ekki farið framhjá þeim sem fylgjast með fréttum undanfarið. Íslenskri eðlisfræðingar fengu leyfi til að útfæra þekkta tilraun Erwin Schrödinger, sem kennd er við „kött Schrödingers” og hann lýsti árið 1935, yfir á ráðherrastól í ríkistjórn Íslands.

Pétur Blöndal klúðraði pizzupöntun á landsfundi

„Það var allt með ananas! Maðurinn er ekki í lagi,“ sagði einn reiður viðmælandi fréttastofu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins en Pétur Blöndal alþingismaður fékk það verkefni að panta pizzur fyrir mannskapinn og bað um ananas á þær allar.

Formaður bæjarráðs bókaði „Tits or GTFO“

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs í Kópavogi, setti líklega met um stystu bókun á fundi ráðsins í dag. Á fundi bæjarráðs Kópavogs í síðustu viku lagði Guðríður fram bókun sem var í grófari kantinum: Tits or GTFO.

Jón Bjarnason biður þjóðina að treysta sér til að taka ákvarðanir fyrir hana

Sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarnason, telur víst að aðildarsamningur við Evrópusambandið yrði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu meðal landsmanna. Það álit sitt byggir hann á sinni gríðarlegu greind.