Sérstakur saksóknari: „Ég fíla spandex“
„Ég fíla spandex,“ segir Ólafur Þór Hauksson, betur þekktur sem sérstakur saksóknari, sem hefur frumsýnt nýjan einkennisbúning embættisins. Óli, sem er meðal annars þekktur fyrir að vera snar í snúningum, dansar djarflega í níðþröngum, hvítum „spandex“-galla í myndbandi sem hann sendi frá sér í dag.
Myndbandið var tekið af dómsmálaráðherra, úti á palli við heimili Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
„Nágrannar Jóns eru orðnir öllu vanir,“ segir Ólafur og hlær og segir þá hafa horft á dansinn hans úti á palli stórum augum. „Þetta er auðvitað ekki í fyrsta sinn sem við skemmtum nágrönnum hans Jóns og örugglega ekki í það síðasta. Ég sem stefið sem fylgir búningnum og syng mikið.
Keypti „spandex“-galla á Ebay
Hann virðist alls ófeiminn við að vera djarfur. Er hann ekkert feiminn? „Nei, alls ekki. Ég er ekkert feiminn, ég er löngu kominn yfir allan hégóma. Sem betur fer því það er svo mikil tímaeyðsla. Ég er bara eins og ég er. Hégóminn er hluti af gelgjunni, það er ánægjulegt að komast á það skeið að vera sáttur við sjálfan sig.
Það er líka lykilatriði að taka sig ekki alvarlega og skella sér í góðan partíbúning.“
Ólafur er í helgarviðtali Sannleikans og ræðir um djobbið , líflegan heimilisiðnað og fjölmörg ævintýri sem fylgja embættinu.





.jpg)