Vilja banna fóstur í matvælum
Ríkisstjórnin kynnti í gær nýtt frumvarp sem bannar notkun eyddra fóstra í matvælum. Er þetta liður í að herða eftirlit með matvælaiðnaðinum en komið hefur í ljós að eftirlit er nánast ekkert.
Steingrímur J. Sigfússon sagði að leit á internetinu hafi sannfært hann um að bannið væri nauðsynlegt. Hann sagði að tilgangur frumvarpsins væri að upplýsa almenning um slíkt athæfi. Að auki vill hann koma í veg fyrir að fyrirtæki íhugi að nota fóstur í vörum.
Heldur hann því ennfremur fram að sum fyrirtæki noti stofnfrumur til að þróa nýjar bragðtegundir eins og stelpu- og strákaís.
Íslenskir bakarar eru æfir vegna þessa og tala um aðför að sér. Þessar hugmyndir eru uppi í öðrum löndum og jafnvel þó frumvarpið yrði ekki að veruleika hér á landi þá óttast þeir að þetta bann rati í íslenskja löggjöf bakdyramegin í gegnum EES samninginn.
Fréttastofa hafði samband við Jóa Mel, bakara sem sagðist vonast til að Matvælastofnun leyfi bökurum landsins að klára birgðir sínar, enda sé þetta fullkomnlega örugg fóstur til neyslu.




