Spyr ráðherra um nefndir og ráð
Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokks hefur lagt fram tíu fyrirspurnir á Alþingi, það er til allra ráðherra í ríkisstjórn, um neyðarútganga, tískuráð, símanúmer neyðarlínunnar og hvað er í hádegismatinn.
Þingmaðurinn fer fram á skrifleg svör ráðherranna og vill fá upplýsingar um fjölda neyðarútganga í þinghúsinu og af hverju það séu ekki neon merkingar sem lýsa í myrkri sem vísa í áttina til þeirra, hvernig best sé að klæða sig til að vera tekin alvarlega, af hverju símanúmer neyðarlínunnar þarf að vera svona flókið og af hverju það sé aldrei lasagna „eins og mamma gerir“ í mötuneytinu.
Þá vill Vigdís fá upplýsingar um hvaða einstaklingar hafi verið skipaðir eða tilnefndir til að fara út með ruslið, það hafi ekki verið gert síðan um helgina og hver launakostnaður þeirra sem það gera sé.





.jpg)