Beint á blogg

Stjörnuspáin 25. Janúar - 1. Febrúar

Hrúturinn 21.mars – 19.april
Þú lærir um Miklahvell með aðstoð þriggja blökkumanna og vídeóupptökuvél.

Nautið 20.april – 20.maí
Þú fékkst bréf frá einhverjum Jens um fría brjóstaskoðun á skemmtistaðnum Esju næstkomandi Laugardagskvöld.

Tvíburinn 21. maí- 20.júní
Farðu nú að taka niður jólaskrautið, það er að nálgast febrúar. Það á einhvern annars eftir að hengja sig í þessu.

Krabbinn 21.júní – 22. júlí
Viðbrögð Sjálfstæðismanna við áramótaskaupinu valda þér gleði. Þú ert augljóslega ekki húmorssnauðasta manneskja landsins lengur.

Ljónið 23.júlí – 22.ágúst
Móðir þín reynir að þvinga þig í skipulagt hjónaband með yfirmanni sínum í von um stöðuhækkun.

Meyjan 23.ágúst – 22. september
Eftir langa umhugsun kemst þú loksins að niðurstöðu. Sennilega er best að láta kíkja á þetta. Vessandi bláþrútnar vörtur á kynfærum geta ekki talist eðlilegar undir neinum kringumstæðum.

Vogin 23.september – 22.oktober
Nágrannarnir eru eitthvað ósáttir við að þú sért að smúla gangstéttirnar fyrir utan með vatnsslöngu. Segja að vatnið frjósi og geri gangstéttirnar hættulegar.
Hvað halda þau annars að þú sért að reyna að gera?

Sporðdreki 23.oktober – 21.november
Sumt fólk vekur gleði og kátínu hvert sem það fer. Annað fólk þegar það fer. Gettu hvorum hópnum þú tilheyrir.

Bogmaður 22.november- 21.desember
2012 verður gott ár fyrir þig og þína fjölskyldu, sérstaklega fjölskylduna... já eiginlega bara fjölskylduna. Semsagt þú verður fyrir bíl og deyrð og þau fá tryggingaféð eftir þig. Heppin þau.
Þú getur nú samt haldið gleði þinni. Þú áttir góða spretti.

Steingeit 22.desember – 19. janúar
Veðrið skánar um leið og þú fjárfestir í rándýrri úlpu.

Vatnsberinn 20.janúar – 18.februar
Þú sérð veröldina á nýjan hátt. Krabbamein í auga hefur oft þau áhrif.

Fiskarnir 19.febrúar – 20.mars
Það er kominn tími til að fara að taka einhverja áhættu. Of lengi hefur þú spilað allt safe, nú er tíminn til að taka af skarið.
Næst þegar pabbi þinn kemur þá tekur þú börnin ykkar og reynir að flýja úr kjallaranum og hananú!