Beint á blogg

Hvernig íslenskir fjölmiðlar virka

Grjóni Einskítsson's picture

Stef frá áttunda áratugnum þagnar og einn hinna fjögurra fréttamanna Íslands mælir.
Þáttastjórnandi: Góðan dag, við höldum áfram að fylgjast með klúðurmálinu sem að allir hafa svo einlægan áhuga á. Hérna hjá mér er sestur Jón Jónsson, forstöðumaður einhvers sem að á einhvern hátt tengist efninu. Svo Jón, hvað gerðist?
Jón: Tja, það gæti hafa orðið klúður...
Þáttastjórnandi: Ó já!? Það var sko stórklúður, er það ekki? Þetta er búið að vera mikið í umfjöllun að undanförnu.
Jón: Já, jújú...
Þáttastjórnandi: Afhverju er það ekki viðurkennt að þarna hafi orðið klúður?!
Jón: Sko, við gerum það alveg ööö, en-en...
Þáttastjórnandi: Þetta klúður gerðist fyrir margt löngu og of seint í rassinn gripið og afhverju grípið þið ekki í rassinn?
Jón: Það er nú þannig að ööö...
Þáttastjórnandi: Ég er hérna með hjá mér reglugerð EES sem að segir að svona klúður sé ekki ákjósanlegt og gæti hugsast á einhvern hátt að eitthvað hafi farið úrskeiðis. Blaðsíða 15, málgrein 45, þriðja setning.
Jón: Já, já, við höfum tekið ööö...
Þáttastjórnandi: Er það ekki þannig að svona klúður geti einhverntíman á einhvern hátt haft einhver áhrif í framtíðinni?
Jón: Jú, en það gerðist ööö svo sem ekki neitt merk...
Þáttastjórnandi: Takk fyrir komuna Jón Jónsson, einhver manneskja sem að var nógu ómerkileg til þess að mæta hingað í Efstaleitið klukkan hálf átta að morgni. Við munum halda áfram að fjalla um klúðursmálið enda óendanlegur áhugi fyrir því og augljóst að málalok verði.

DAGINN EFTIR

Stef frá áttunda áratugnum þagnar og einn hinna fjögurra fréttamanna Íslands mælir.
Þáttastjórnandi: Góðan dag, hjá mér er sest Björt Öndun Slæðudóttir, formaður álfaskoðana félags Garðabæjar. Svo Björt, hvað eru álfar?
Björt: Tjaaa... álfar eru svona verur sem að... sjást ekki með berum augum né mælast á nein mælitæki. En ég sé þær.
Þáttastjórnandi: Og eru þær eitthvað hættulegar?
Björt: Janei, alls ekki. Við höfum skoðað þær mjög vandlega og komist að því að svo er ekki. Til eru margar gerðir svo sem skottuálfar, búálfar og hinir hættulegu svartálfar. Svartálfar valda sjúkdómum.
Þáttastjórnandi: Ég skil. En... eru álfar í alvörunni til?
Björt: Ójá! Eins og ég sagði hafa margir séð þá og við erum með óljósar skemmdar ljósmyndir af þeim.
Þáttastjórnandi: Jahá, svo þeir eru þá til.
Björt: Já, og eins og ég sagði þá valda hinir vondu svartálfar sjúkdómum. Við seljum náttúrulækningar gegn þeim.
Þáttastjórnandi: Náttúrulækningar?
Björt: Já, algjörlega náttúrulegar plöntur sem að eru alls staðar í náttúrunni en þú getur af einhverjum ástæðum bara keypt hjá mér. Mjög ódýrt, bara fimmþúsundkall krukkan.
Þáttastjórnandi: Og virkar þetta?
Björt: Jájá, virkar t.d. gegn kvefi og lætur það hverfa eftir nokkra daga, höfuðverk, svima, kláða og svona öllu sem að hendir mann dagsdaglega og hverfur hvort sem er. Við seljum einnig álfaflutningaþjónustu þar sem að við bægjum út svartálfum og bjóðum skottuálfum inn í húsið. Mjög ódýrt, bara 10.000 kr fyrsta skiptið og ég þarf að minnsta kosti fimm heimsóknir.
Þáttastjórnandi: Stórmerkilegt. Þakka þér Björt Öndun fyrir þessa fræðslu og rýni á félagið.
Björt: Takk fyrir.