Beint á blogg

Áhorf

Mói Grapes's picture

Maður er það sem maður borðar, sagði einhver.

Kannski mætti eins segja að maður sé það sem maður horfir á.

Það væri til að æra óstöðugan að telja upp allt sem fólk horfir á.
Er ég þó hvorki sérlega ær né óstöðugur.

Ég tel, til að mynda, megin þorra Alþingismanna horfa oní klósettskálar í Garðabæ.

Nokkrar eru þó undantekningarnar.

Flestir hinir horfa út í loftið.
Sumir horfa á Omega.
Aðrir horfa á torfbæi.
Margir horfa í gaupnir sér.
Einn, innanríkis, horfir um of á ÍNN.