Beint á blogg

Vér ritstjórn

Starfsemi um helgar

Evrópu-Unnar's picture

Mér finnst það mjög sorglegt að alkahólistarnir sem eru með mér í ritstjórn á þessu blaði, séu það þjakaðir og langt gengnir í sínum sjúkdómi, að þeir geti ekki uppfært síðuna um helgar.

Það er fullt að gerast hjá hinum fréttamiðlunum, mbl, vísi og dv. En þar er líka áræðanlegt fólk, annað en hér á Sannleikanum.

Hér eru menn bara fullir, eltandi skinkur allar helgar.

Íslensku vefverðlaunin

Vefstjóri's picture

Fyrir nokkru auglýsti Sveif - Samtök vefiðnaðarins, að verið væri að taka á móti tilnefningum til íslensku vefverðlaunanna. Það kostaði hinsvegar hátt í 10 þúsund krónur að tilnefna vef í einhvern flokk.

Óhughreystandi rugl

Tyrannosaurus Kex's picture

Þeir sem segja þá deyja unga sem guðirnir elska ættu að manna sig upp í að fara upp á Hrafnistu og segja þetta við fólkið þar.
Segja þetta beint við fólkið sem guð hatar svo mikið að hann fresti því eins lengi og hægt er að hitta það.

Bensín og handbolti

Arnar Einar Unnarsson's picture

Bensínstöðvar ÓB tóku upp á því að láta „strákana okkar" á HM í handbolta í Svíþjóð stjórna því hve mikill afsláttur er gefinn daginn eftir hvern leik íslenska liðsins. Svo fylgdi Atlantsolía og Orkan í kjölfarið. Það þýðir að þegar Ísland lagði Japan með 14 marka mun lækkuðu olíufélögin bensínverð um 14 krónur.

Ráð til unga fólksins

Einn gamall en nettur's picture

Ef viðhorf þitt til lífsins er það að lífið sé svo erfitt og ósanngjarnt gagnvart þér þá getur þú alveg eins fjárfest í ruggustól strax og beðið eftir ellinni. Ellinn er tíminn sem þú situr í forljóta ískrandi stólnum þínum, horfir á konuna sem þú lést þér næga, hatar sjálfan þig í hljóðu og hugsar um lítið annað en að drepa þig.

Hugvekja

Einn gamall en nettur's picture

Eruð þið búin að éta yfir ykkur af veislumat?
Búin að gefa hvort öðru gjafir fyrir stórfé og skuldsetja ykkur mánuði fram í tímann?
Á svo næst að kaupa sprengiefni fyrir þúsundir og sprengja upp hverfið undir áhrifum áfengis?

Djöfull eruð þið rugluð!

Svíþjóð

Arnar Einar Unnarsson's picture

Ef Julian Assange er sekur um það sem sænsku konurnar tvær saka hann um, hvernig stendur á því að hann hefur aðeins brotið gegn sænskum konum? Maður á fertugsaldri sem á sér enga sögu um svona lagað verður allt í einu óður þegar hann hittir Svía.

Örorka

Einn gamall en nettur's picture

Öfund er þetta í fólki. Öryrkja tekst að svindla svo rækilega á kerfinu að hún er með hærri laun en þingmaður og allt verður vitlaust.
Ég gleðst yfir því hvað hún er dugleg að afla sér viðurværis.

Spilavíti

Arnar Einar Unnarsson's picture

Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hotels, vill reisa spilavíti á Íslandi en íslenska ríkið vill ekki sjá þess háttar starfsemi og leyfir hana ekki.

Umræðan

Snær Blær's picture

Icesave icesave icesave icesave icesave icesave icesave icesave icesave icesave WikiLeaks WikiLeaks Icesave WikiLeaks WikiLeaks WikiLeaks WikiLeaks Icesave WikiLeaks WikiLeaks WikiLeaks WikiLeaks Icesave WikiLeaks