Beint á blogg

Spjallborðsgestir Sannleikans gagnrýna allt og ekkert

18 Mar 12
  1. Þættir

Hver man ekki eftir barnaþáttunum ástsælu um Latabæ, sem Magnús Scheving gerði garðinn frægan með á árunum í kringum 1980? Íþróttaálfurinn, Solla stirða, Glanni glæpur og öll krúttulegu tuskudýrin.

31 Jan 12
  1. Leikhús

Fyrr á árinu fór ég í gamla bíóið mitt, Austurbæjarbíó, til að sjá leikritið Alvöru menn. Leikritið er endurgerð kvikmyndarinnar Real Men, sem ég sá einnig í sama sal fyrir nokkrum áratugum. Þar fer John heitinn Ritter á kostum í hlutverki kveifarlega fjölskylduföðurins Bob, sem Jim Belushi dregur nauðugan í hlutverk nýlátins CIA útsendara vegna þess hve líkir þeir eru.

31 Jan 12
  1. Myndlist

Adolf Hitler er Austurrískur listmálari sem málar helst myndir af landslögum og byggingum. Hitler er sonur tollstarfsmanns og hlaut íhaldsamt millistéttar uppeldi sem endurspeglast í íhaldsömum og fremur þurrum málverkum hans. Eins og meðfylgjandi mynd sýnir þá er hann hvorki að gera neitt nýtt eða spennandi.

31 Jan 12
  1. Þættir

Áramótaskaupið var óvenju gott í ár. Það er ljóst að fréttastofa RÚV hefur lagt hart að sér þetta árið og sú nýbreytni að hafa skaupið í tvennu lagi og sýna það fyrr á gamlárskvöld en áður hefur verði kom vel út. Mikil áhætta var tekin með því að skipta sérstaklega á milli gríns um innlenda og erlenda viðburði ársins en hún borgaði sig þegar upp var staðið.

11 Dec 11
  1. Bókmenntir

Hópur af dvergum og galdrakarl neyða einhverja bollu með sér að drepa stóra eðlu. Hrikalega óspennandi bók og maður fær þá tilfinningu að maður hafi lesið þetta allt einhverstaðar áður.