Beint á blogg

Maður í farbanni fór samt

Litháískur karlmaður sem var í farbanni vegna dóms í fíkniefnamáli er flúinn úr landi. Verið er að skoða hvernig honum tókst að snúa á yfiröld en líklegt þykir að hann hafi hunsað farbannið.

Ætla að skilja Ólaf Ragnar eftir á Suðurskautslandinu með starfsfólki Útvarps Sögu

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur þegið boð Al Gore, mannsins sem fann upp internetin og fyrrum varaforseta Bandaríkjanna, um að taka þátt í leiðangri vísindamanna og forystufólks í baráttunni gegn leiðindum til Suðurskautslandsins.

Ólafur djammar með bankamanni

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hitti Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í gær en þeir eru báðir staddir á Heimsþingi hreinnar orku (World Energy Future Summit) í Abu Dhabi.

N1 stöðvarnar vilja frekar selja drasl frá Spáni en Íslandi

N1 hefur flutt inn mikið magn af spænsku drasli undanfarið því fyrirtækið var óánægt með innkaupsverðið hjá Sorpu sem er þeirra helsti birgi. Í verslunum N1 er því hægt að kaupa spænskt drasl, en það kostar það sama og íslenska draslið.

Ráðinn málflytjandi í Icesave-málinu

Utanríkisráðherra kynnti í dag ríkisstjórninni ákvörðun sína um að ráða Jón Ásgeir Jóhannesson til að vera aðalmálflytjandi í samningsbrotamálinu sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur höfðað vegna ábyrgðar á lágmarkstryggingu á Icesave-reikningunum.

Grunar að sílikonbrjóstin séu farin að leka

Jack Nicholson, leikari, hefur greitt hálfa aðra milljón fyrir sílíkonpúða og aðgerðir á brjóstum. Hann er núna með sílíkonpúða frá PIP. Undanfarið hálft ár hefur hann fundið fyrir miklum verkjum og grunar að sílíkonið sé farið að leka.

Norðmenn æfareiðir

Engir Norðmenn urðu milljónamæringar í gærkvöldi því einhverjir helvítis Danir og Svíar fengu alla rétta í Víkingalottóinu og hirtu vinninginn sem Norðmenn telja sig vera með í áskrift.

Samúðarkveðjur til Norður-Kóreu

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í hádeginu samúðarkveðjur til Norður-Kóresku þjóðarinnar.

Áfram með smjörið tekið bókstaflega í Noregi

Nýtt gullæði virðist hafa gripið um sig í Noregi, þar sem verð á smjöri hefur náð áður óþekktum hæðum. Smjörforði Norðmanna er algjörlega á þrotum og nú verða þeir að grípa til innflutnings á "mjúka gullinu", eins og smjör er kallað á götunni. 30 gramma pakkningar ganga kaupum og sölum á svarta markaðnum, og kíló af óblönduðu smjöri er orðið dýrara en kókaín.

Nýjasta tíska á Alþingi er stuðningur við Geir

Forystumenn stjórnarandstöðunnar undirbúa nú að leggja fram þingsályktunartillögu um að að Alþingi dragi til baka málshöfðun á hendur Geir H. Haarde, kraftaverkabarni, fyrir landsdómi og gulltryggja þannig að störfum ráðherra og þingmanna fylgi aldrei nokkur ábyrgð - sama hversu miklu er klúðrað.