Beint á blogg

Útgefandi símaskrárinnar býður fólki glaðlegan og kátan björn til að líma yfir Egil

„Við höfum útbúið tvær tegundir af límmiðum fyrir þá sem þess óska. Sá flottari er svokallaður Pedobear sem virðist njóta mikilla vinsælda meðal ungs fólks á netinu," segir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri og sviðsstjóri hjá Já.

Lögleiðing fíkniefna eina leiðin fyrir Suðurnesin

Eina leiðin til þess að binda enda á blóðbaðið sem staðið hefur yfir í tengslum við eiturlyfjagengi í Reykjanesbæ og Vogum undanfarin ár er að gera eiturlyf lögleg. Þetta segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Gert verði ráð fyrir „ætluðu samþykki“

Þingmenn úr öllum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis að velferðarráðherra verði falið að láta semja frumvarp sem geri ráð fyrir „ætluðu samþykki“ við uppáferðir í stað „ætlaðrar neitunar“, þannig að dauðadrukkinn einstaklingur verði sjálfkrafa talinn til í tuskið nema hinn drukkni hafi látið í ljós vilja til hins gagnstæða.

VIÐBÚNAÐUR VIÐ STJÓRNARRÁÐIÐ - HVERFISGÖTU LOKAÐ - CAPS TAKKINN FASTUR INNI SORRY

Tilkynning um torkennilegan hlut barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu klukkan níu í morgun. Sigurbjörn Víðir Eggertsson stöðvarstjóri á lögreglustöðinni við Hverfisgötu staðfestir þetta í samtali við Útvarp Sögu.

Þjóðin hafnaði Herberti

Vanþakklát þjóð með engan tónlistarsmekk hafnaði listamanninum Herberti Guðmundssyni og framlagi hans í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Erfiðlega gekk að koma Herberti af sviðinu hann neitaði að fara og öskraði bara „Can't walk away“.

Björgólfsfeðgar stálu 7 milljörðum á seinustu sekúndunum fyrir fall Landsbankans

7.200 milljónum króna var stolið úr gamla Landsbankanum rúmlega tveimur og hálfri klukkustund eftir lokun á síðasta starfsdegi bankans. Féð var falið í Straumi en Björgólfsfeðgar misnotuðu völd sín í bankanum til að stela fénu.

„Lúxussnjóhús“ hrundi

Snjóhús hrundi við Smiðjugötu á Ísafirði í gær. Snjóhúsið hafði vakið mikla athygli frá því að það var reist milli jóla og nýárs en það var mjög veglegt enda notað sem íbúðarhús.

Tugum tilkynnt um símhleranir

„Hahahaha, þetta er drepfyndið efni. Símhleranir eru snilld!“ er haft eftir Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, í Fréttablaðinu í dag. Segir hann ennfremur að sumt sem þeir hleruðu hafa sagt í símtölum sé svo „yndislega veruleikafyrrt“ að verið gæti að einhverjir sakborningar séu ósakhæfir.

Hannes Hólmsteinn fær Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Það var glatt á hjalla hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni eftir að tilkynnt var að hann fengi Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir nýútkomna bók sína: "Uppáhalds þráhyggjan mín: Kommúnistar".

Kjúklingarnir sem voru í lífshættu á Holtavörðuheiðinni komnir í pottinn á KFC

Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna var að í alla nótt að bjarga matseðilinum á KFC en stór flutningabíll með kjúklinga fór út af veginum laust fyrir eitt á Holtavörðuheiði.