Beint á blogg

Kona varð að athlægi eftir að hafa mætt órökuð í sund

Kona á þrítugsaldri vogaði sér að mæta órökuð í sund í sundlaug Kópavogs í gær, mánudag og var flæmd í burtu af hneyksluðum kynsystrum sínum.

Konan, sem vildi ekki láta nafn síns getið, hefur langa sögu um geðsjúkdóma og hefur ítrekað þurft að hafa afskipti af henni í sundlaugum höfuðborgarsvæðisins. Er hún oft kölluð „apakonan“ þar sem hún virðist ekki skynja það að líkamshár eru ógeðsleg og særa blygðunarkennd fólks.

Að sögn Guðjóns Eiríkssonar, sviðsstjóra fræðslu-, tómstunda- og íþróttasviðs Kópavogs, er skortur á sjálfsvirðingu vaxandi vandamál í þjóðfélaginu og það sjái starfsmenn sundlauga vel þegar sóðar reyna að nýta sér sundlaugarnar með órakaðan pung eða píku. Segir hann þennan sóðaskap vera ólíðandi og nefnir sem dæmi stóra faraldurinn 2003, þegar nánast allir íbúar Stokkseyrar smituðust af flatlús sem rekja mátti til þess að bæjarbúar voru að trassa eðlilegan líkamshárarakstur og fara í sund.

Nú er til umræðu á Alþingi að lögreglu verði heimilt að raka fólk með valdi sem sinnir ekki eðlilegu viðhaldi sínu, svo hægt sé að koma í veg fyrir faraldra af því tagi sem henti Stokkseyri og vernda sundlaugagesti gegn þeirri augljósu sjónmengun sem líkamshár eru.