Beint á blogg

Ögmundi hrósað í sturtunni

„Hann kom bara að mér í sturtu og sagði: Ó, guð, vá, þetta er svo flott. Maður er búinn að pæla svo mikið í þessu.,“ segir Ögmundur Jónasson í samtali við DV um frekar furðulega reynslu sem hann varð fyrir í sturtuklefanum í World Class í Laugum á dögunum.

Þar var Ögmundur í sturtu eftir æfingu þegar að maður sem hann þekkir ekki vatt sér upp að honum og byrjaði að hrósa kynfærum hans.

Ögmundi var nokkuð brugðið eftir atvikið. „Ég var bara í sjokki, ég var enn þá með sjampó í hárinu og sagði bara uuuh takk. Svo var hann bara farinn og ég sá hann ekki betur. Maður fær ekki að þrífa sprellann á sér í friði. Þetta er ógeðslega óþægilegt og ég hef ekki lent í þessu áður. Ég er bara nýbyrjaður að þora að fara í sund og svona eftir að ég gránaði. Ég held samt hann hafi kannski ekki meint neitt illt með þessu en þetta er samt frekar furðulegt. Ég er náttúrulega búin að vera rosalega opinber manneskja þannig að þetta er kannski svolítið mér að kenna en þetta er samt rosalega óþægilegt.“

Eftir atvikið hefur hann ekki farið í ræktina en nánar má lesa um þetta mál í DV í dag.