Beint á blogg

Algjör niðurlæging Íslands

Ísland drullutapaði gegn Norðmönnum, 32:4, í D-riðli Evrópumóts karla í handknattleik í Millennium-höllinni í serbneska bænum Kurva í kvöld. „Þeir spiluðu eins og þeir væru í bleyju,“ sagði landsliðsþjálfarinn, Guðmundur Guðmundsson, eftir leikinn.

Ísland er þar með komið með -2 stig eftir tvær umferðir, eins og Norður-Kórea. Vatíkanið er með 4 stig en Slóvenía ekkert. Leikur Íslands og Slóveníu á föstudag ræður endanlega úrslitum í riðlinum en Norður-Kórea, Noregur og Slóvenía berjast um tvö sæti í líkriðli. Ísland situr eftir með salt ennið.

Norðmenn voru yfir í hálfleik, 20:1, og voru síðan með forystuna nær allan seinni hálfleikinn. Mest munaði þrjátíu mörkum þegar staðan var 32:2 og tvær mínútur voru eftir.

En lokakaflinn var magnaður hjá íslenska liðinu sem skoraði tvö mörk í röð þegar tvær mínútur voru eftir. Norðmenn sem hefðu átt að verða aðeins stressaðir við þennan góða kafla okkar, virtust engar áhyggjur hafa.
Björgvin Páll varði eitt skot í leiknum en er, samkvæmt heimildarmönnum fréttastofu, búinn að taka fjögur núna stuttu eftir leikinn og hefur pantað sér tvöfaldan vodka í kók.

Ísland fékk boltann nokkrum sinnum í leiknum og hélt honum í nokkrum tilfellum en það dugði ekki til.

Mörk Noregs: Erlend Mamelund 10, Lars Erik Björnsen 5, Bjarte Myrhol 3, Einar Koren 3, Espen Lie Hansen 3, Börge Lund 3, Christoffer Rambo 2, Håvard Tvedten 2, Vegard Samdahl 1.

Mörk Íslands: Herbert Gunnarsson 1, Gunnar Valur Sigurðsson 1, Alexía Petersen 2.