Beint á blogg

Verndari okkar

TF-BÚM er hetjan sem Reykjavík verðskuldar, en ekki sú sem hún þarf núna. Svo við eltum hann og ofsækjum. Því hann þolir það. Af því að hann er ekki hetja. Hann er þögli bjargvætturinn. Verndari á varðbergi.
Hann er Guli Riddarinn...

Vitdís í beinni línu

Vigdís Hauksdóttir alþingismaður og aðstoðarmaður Jókersins setti nýtt Íslandsmet í Counterstrike, þegar hún sýndi snilldarleik og vék sér undan hverri skothríðinni á fætur annarri. Þegar andstæðingar hennar sökuðu hana um að hafa rangt við sagðist hún finna kúkafýlu sem væri sko ekki hennar eigin og snéri svo öllu bara upp í djók og gerði broskall og lol og allt varð gott aftur.

Yfirlýsing frá Mjólkursamsölunni og Jens lýtalækni

Mjólkursamsalan hefur innkallað fimm vörutegundir þar sem þær eru taldar innihalda PIP iðnaðarsílikon og vill um leið lýsa eftir konum sem gætu haft iðnaðarsalt í brjóstunum á sér.

Jens Kjartansson, lýtalæknir, og MS biðjast velvirðingar á þessum ruglingi.

Handbolti

Nýr þjálfari íslenska handboltalandsliðsins, Adolf Ingi Erlingsson hefur komið með ýmsar nýjar reglur sem ætlað er að auka agann hjá liðinu. Leikmenn liðsins segja að flestar reglurnar virki hvetjandi, en þeir séu skíthræddir við að fara í sturtu eftir tapleiki.

Vitgrönn Spaugsdóttir

Ég veit hvernig við stöðvum þennan „krataáróður“
Það er mjög einfalt. Við drepum Batman!

Mikill vatnselgur á höfuðborgarsvæðinu

Mikill vatnselgur er á höfuðborgarsvæðinu og á Sandskeiði og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát á þessum leiðum.

Viðeigandi staðsetning fyrir myndatöku

Eygló Harðardóttir, ritari Framsóknarflokksins, er meira og minna alltaf úti á túni eins og flestir framsóknarmenn.

Fluttur á sjúkrahús

Leikarinn Jackie Chan var fluttur á sjúkrahús um síðustu helgi eftir að ölvaður njörður með mikilmennskubrjálaði réðst á hann með öflugu karate höggi. Bardagahetjan er búinn að jafna sig eftir atvikið og hyggur á hefndir.

Janúargrillið í Garðabænum

Árleg grillveisla gæludýraeigenda í Garðabæ fór nýlega fram. Var mannmargt og allir fóru mjög saddir og sáttir heim.

Að liðnum jólum

Jólamaturinn hjá Hjálpræðishernum vakti ekki lukku þetta árið.