Beint á blogg

Svara ummælum

Kókaínsmyglari vinnur meiðyrðamál

Dæmdur fíkniefnasmyglari, Rúnar Þór Róbertsson, vann meiðyrðamál fyrir Hæstarétti Íslands í dag gegn blaðamanni Dv en sá hafði kallað hann fíkniefnasmyglara.
Hæstarétti þótti ekki sannað að hinn dæmdi fíkniefnasmyglari væri í raun og veru fíkniefnasmyglari, þrátt fyrir að Hæstiréttur hafði áður dæmt manninn fyrir, einmitt, fíkniefnasmygl.

Náði þarna Hæstiréttur nýjum hæðum í bjánaskap og hálfvitagangi og sannaði enn á ný að þó að hálfviti klári lögfræðinám og öðlist frama sem slíkur, þá er sá hinn sami, þrátt fyrir allt, enn hálfviti.

Voru því Erla Hlynsdóttir, blaðamaður Dv, og Sigurjón M. Egilsson, fyrrverandi ritstjóri Dv, dæmd til að greiða dæmdum fíkniefnasmyglara, sem þó er ekki sannað að sé slíkur, 150 þúsund krónur í skaðbætur, sem eflaust fara í að fjármagna næsta fíkniefnasmygl sakleysingjans.

Svara

  • Slóðir á heimasíður og e-mail addressur breytast sjálfkrafa í hlekki.
  • Leyfð HTML tögg: <a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd> <blockquote>
  • Línubil gerast sjálfkrafa.

Meiri upplýsingar um leyft HTML

CAPTCHA
Ert þú maður eða vél?
Fill in the blank