Beint á blogg

Pistlar Evrópu-Unnar's

Sjúkt fólk

Evrópu-Unnar's picture

Nýjasta æðið hérna á ritstjórnarskrifstofunni er einhver fáránleg græja sem gengur fyrir batteríum og leiðir rafmagn út í einhverja víra. Þetta sjúka fólk sem hérna starfar hefur búið til einhvern leik um þessa græju.

Sumt má greinilega ekki grínast með

Evrópu-Unnar's picture

Mér varð það á í gær að grínast með það að fréttastjórinn okkar hann Tyrannosaurus Kex væri aðalhöfundur Kexverksmiðjunar sem sýnd er á RÚV á laugardagskvöldum.
Fyrir það djók uppskar ég glóðurauga, skrifstofan mín var færð inn í ræstikompu og mér tilkynnt að ég væri á fréttavakt bæði á aðfangadag og gamlárskvöld.

Ég get ekki hætt

Evrópu-Unnar's picture

Sama hvað ég reyni að tala við menn hérna þá verða skrifin bara grófari og grófari. Stundum held ég að þessi síða hafi verið stofnuð gagngert til þess að reita fólk til reiði.
Ég vil ekki vinna hérna lengur.

Ég fór inn á skrifstofuna til Tyrannosaurusar Kex í gær og tilkynnti uppsögn mína.

Neyddur til reykinga

Evrópu-Unnar's picture

Fréttastjórinn okkar hann Tyrannosaurus Kex hefur skikkað okkur öll á ritstjórnarskrifstofunni til að byrja að reykja. Þeir sem ekki verða við því „geta drullað sér yfir á Barnaland“ - Hann er svo smekklegur í orðavali alltaf.

Það sem ég þarf að þola - I

Evrópu-Unnar's picture

Ó guð. Tyrannosaurus Kex er farinn að semja brandara um námumennina sem setið hafa fastir í námunni þarna í Chile og þeir eru ekki einu sinni allir komnir upp á yfirborðið. Mér finnst það allt of snemmt. Maðurinn hefur enga siðferðiskennd.
Áðan spurði hann mig „Hver er munurinn á námumönnunum frá Chile og Ikea?“