Beint á blogg

Pistlar Grjóni Einskítsson's

Vá ég elska Hildi Lillendahl

Grjóni Einskítsson's picture

Ég bara svoleiðis dýrka hana. Allt þetta ógurlega innsæi á nútímamál og heimspeki, hvernig hún orðar hugsanir sínar á Hemmingwayskanhátt og skilur mann eftir í losti alsælu rökfræðilegra rothöggva og visku einungis útleysanlegri í himnaríki.

Það er hafið; stríðið við matinn

Grjóni Einskítsson's picture

Ég hef lengi spáð því og bent á aðdraganda þess og hérna er það; okkar eigin einka stríð við matinn.

Kærur á hendur Kókó-puffs, unglingar í heljargreipum Heilbrigðiseftirlits; þetta er allt búið að rætast!

Og ekki mátti seinna vænta! Bölið sem að maturinn hefur sett á þjóð okkar og æsku er komið út fyrir allan þjófabálk.

Fæðufasistar

Grjóni Einskítsson's picture

Þegar ég sé eitthvað sykurskert í verslun, þá versla ég ekki við fyrirtækið sem að gaf út vöruna í svona mánuð. Vegna þess að þessi sykur- og fituskerðingar geðveiki hefur gengið alltof langt. Sykurskert kex og fitusnautt nammi er bara ónáttúrulegt. Það er í alvörunni til fólk sem að fílar að borða sykur og fitu og raunverulega þarfnast svona alvöru orku, ekki einhvers gervibragðefnasulls.

10 ástæður þess að ríkiskirkjan er ekki kristin

Grjóni Einskítsson's picture

Einhverjum kann að þykja þessar tilvitnanir of dogmatískar en á móti vill ég benda á að þeir sömu og þessi grein kemur við hafa greint sterklega frá því að jafnvel þó að meirihluti nauðsynlegra skilgreininga á hugtaki sé uppfylltur þá þarf ekkert endilega að vera að hugtakið eigi við.

Súkkulaði- og sælgætisvandinn

Grjóni Einskítsson's picture

Súkkulaði- og sælgætisvandinn er böl á þjóðina. Ungt fólk fer út í sælgæti sem að leiðir af sér offitu og frekju. Því er haldið að þeim með sjoppum og ísbílum, og er sælgæti það versta sem að það getur lent í.
Súkkulaði, sælgæti og annað nammi getur lagst þungt á fólk. Fæstir ná sér að fullu eftir sælgætisnotkun, en hún lifir með manni alla ævi.

Mjólk er ekki brund á barni

Grjóni Einskítsson's picture

Sumt er ekki hæft til sýningar á almannafæri. Það eru fyrirbæri á borð við limlest lík, rasistaáróður og Sjálfstæðisflokksauglýsingar. Þetta allt særir blygðunarkennd fólks og réttilega svo, veldur jafnvel velgju og er hættulegt.

Fáum nokkra hluti á hreint

Grjóni Einskítsson's picture

Nr 1

Það er EKKI kl 3 um MORGUNINN
Það er kl 3 um NÓTT
Venjuleg manneskja vaknar á morgnana. Venjuleg manneskja vaknar ekki klukkan 3.
03:00 ER. UM. NÓTT.

Ef að það er 8, 9, 10 og 11 um kvöld, og svo 12 um nótt og svo 1 um morgun þá er nóttin EIN KLUKKUSTUND!

ÞAÐ ER EKKI LÍÐANDI.

Hér eftir skulum við hafa þetta eins og það er og við skynjum:

00:00-06:59 = NÓTT

Kristin þjóð þarf karl í kjól

Grjóni Einskítsson's picture

HÉR ER MYND TIL ÞESS AÐ SKEMMTA FÓLKI MEÐ ATHYGLISBREST OG VEKJA ÁHUGA Á GREININNI

Mig hefur lengi langað til þess að skipta út biskoppnum, en núverandi er leim og veimiltítulegur.

Þetta eru þeir sem voru mér efst í huga sem frambjóðendaefni:

Hvernig íslenskir fjölmiðlar virka

Grjóni Einskítsson's picture

Stef frá áttunda áratugnum þagnar og einn hinna fjögurra fréttamanna Íslands mælir.
Þáttastjórnandi: Góðan dag, við höldum áfram að fylgjast með klúðurmálinu sem að allir hafa svo einlægan áhuga á. Hérna hjá mér er sestur Jón Jónsson, forstöðumaður einhvers sem að á einhvern hátt tengist efninu. Svo Jón, hvað gerðist?
Jón: Tja, það gæti hafa orðið klúður...

Hasshausar og viðeigandi ráðstafanir

Grjóni Einskítsson's picture

Fyrir tveimur vikum komst á mikið öngþveiti í miðborg Reykjavíkur þegar kannabisbullur fylltu vegina.
http://www.dv.is/frettir/2012/1/3/ungmenni-reyktu-kannabis-bilastaedum/

Ungir hasshausar höfðu þá fylkst inn á götur og setið um bílastæði í langan tíma. Þetta er sorgardagur sem að aldrei má gleymast; 3/1/12.