Beint á blogg

Pistlar

Fáum nokkra hluti á hreint

Grjóni Einskítsson's picture

Nr 1

Það er EKKI kl 3 um MORGUNINN
Það er kl 3 um NÓTT
Venjuleg manneskja vaknar á morgnana. Venjuleg manneskja vaknar ekki klukkan 3.
03:00 ER. UM. NÓTT.

Ef að það er 8, 9, 10 og 11 um kvöld, og svo 12 um nótt og svo 1 um morgun þá er nóttin EIN KLUKKUSTUND!

ÞAÐ ER EKKI LÍÐANDI.

Hér eftir skulum við hafa þetta eins og það er og við skynjum:

00:00-06:59 = NÓTT

Betelgás

Mói Grapes's picture

Ég sem hélt að Betelgás væri stjörnumerki

En nei ó nei. Betelgásin er fordómafabrikka.

Sem þykist vera þess umkomin að segja öðrum hvernig þeir skuli lifa sínu lífi, eða ekki. Styðst þá við aldagamla skruddu sem hefur verið svo oft afrituð að líkllega stendur ekkert eftir af upprunanum.

Hallelúja í boði hálvitans.

Þar sem lesið er í rykfallinni bók að A sé B. Þá eru það lög.

Kristin þjóð þarf karl í kjól

Grjóni Einskítsson's picture

HÉR ER MYND TIL ÞESS AÐ SKEMMTA FÓLKI MEÐ ATHYGLISBREST OG VEKJA ÁHUGA Á GREININNI

Mig hefur lengi langað til þess að skipta út biskoppnum, en núverandi er leim og veimiltítulegur.

Þetta eru þeir sem voru mér efst í huga sem frambjóðendaefni:

Vínarbrauðselíta

Mói Grapes's picture

Sirka 40% tekna minna renna beint í kassa ríkisins og Reykjavíkurborgar. Það kallast skattur. Ég græt það ekki. Enda er ég þar að greiða í samtryggingarsjóð okkar allra.

Ég nýt þjónustu samtryggingarinnar á hverjum degi, þegar ég ek um götur borgarinnar eða þjóðvegi landsins. Þegar og ef ég þarf á liðsinni heilbrigðiskerfisins að halda og svo framvegis og svo framvegis.

e

Mói Grapes's picture

Hafið þið pælt í að sumir teygja endalaust sum orð með að bæta hljóðinu 'e' aftan við þau?
Orð eins og 'að', 'og', og 'um', ásamt fleirum.
Haraldur veðurfræðingur og Birgir Ármanns, þingmaður, eru sérlega duglegir við þetta.

Var bara að spökúlera oge þáe hefe ég ekki meira ume þaðe aðe segja.

Vegna umræðunnar um rasistasíður undanfarið

Tyrannosaurus Kex's picture

Rasismi er alvarlegur sjúkdómur sem þjakar aðallega fólk sem hefur orðið undir í lífinu. Oftast er það skortur á menntun og heilbrigðri skynsemi sem verður til þess að einhver verður rasisti en þó kemur fyrir að súrefnisskortur í fæðingu eða slæmt höfuðkúpubrot í æsku valdi einnig sjúkdómnum.

Klámvæðing mín

Mói Grapes's picture

Ég verða að játa á mig þau ósköp að í morgun klámvæddist ég.

Þar sem ég skjögraðist undan sturtunni var mér litið í spegil og sá að andlitið var að verða helst til of mosavaxið. Ég tók þá afdrifaríku ákvörðun að taka upp rakhnífinn.

Hýungurinn var fjarlægður, að fullu.

Eurovision

Tyrannosaurus Kex's picture

Of lengi höfum við Íslendingar sent eitthvað dúllupopp í Eurovison til að þykjast vera einhverjar lágmenningarhórur sem við erum ekki. Hér er loksins tækifæri okkar til að sýna Evrópu hvernig við hugsum og erum raunverulega.

Hvernig íslenskir fjölmiðlar virka

Grjóni Einskítsson's picture

Stef frá áttunda áratugnum þagnar og einn hinna fjögurra fréttamanna Íslands mælir.
Þáttastjórnandi: Góðan dag, við höldum áfram að fylgjast með klúðurmálinu sem að allir hafa svo einlægan áhuga á. Hérna hjá mér er sestur Jón Jónsson, forstöðumaður einhvers sem að á einhvern hátt tengist efninu. Svo Jón, hvað gerðist?
Jón: Tja, það gæti hafa orðið klúður...

Norska mafían 2

Mói Grapes's picture

Ofurtala Víkingalottósins kom upp í kvöld.

Þeir sem hafa sex rétta munu því skipta þremur og hálfum milljarði á milli sín.

Þegar þetta er ritað liggur ekki fyrir hverjir hlutu hnossið, ef einhverjir.
Hafi vinningurinn ekki gengið út munu milljarðarnir halda áfram að bólgna.

Ég veðja þó á að einn eða fleiri norsarar hljóti vinninginn, í ljósi reynslunnar.