Almennt spjall
Áskorun - Kexi, Snorri og Ragnar Thor
Ég kom heim af næturvakt og nennti ekki að fara að sofa strax. Ég lenti í rökræðum við mjög erfiðan andstæðing, Ragnar, um Snorra í Betel.
Eftir smá rökræður á vegg Ragnars þá höfum við ákveðið að skora á skólastjóran í Brekkuskóla á Akureyri og Snorra í Betel í rökræður.
Snorri, sem er á móti samkynhneigð, Ragnar, sem finnst að kennarar eigi rétt á því að hafa þessar skoðanir, og ég sem er á þeirri línu að Snorri eigi ekki að fá að kenna börnum í skólakerfinu.
http://maurildi.blogspot.com/2012/02/ask...la-og.html
Vonandi verður þessari áskorun tekið.

Categories: Koníakstofan
Sannleikur eða lygi á Smartlandi? Hvoru trúir þú?
Hér er glæsilegur pistill um hvernig Smartlandið virkar.
Quote:Ég er búinn að vera mjög tvístígandi að halda áfram skrifum mínum á Smartlandi en ég hef verið hvattur til þess að halda áfram þar sem það séu svo fáar raddir skynseminnar og vísindanna þarna á Smartlandinu að það væri verra að vera þar ekki. En nú veit ég barasta ekki lengur.
Fyrir utan hvað hann hefur rétt fyrir sér þarna þá elska ég það að þarna er gagnrýni á Smartlandið á Smartlandinu sjálfu.

faggalicious á Facebook
Ég tók eftir því að einhverjar vinir mínir eru að nota eitthvað Facebook dæmi sem heitir taggalicious. Ég ákvað að prófa. Ég er einhleypur og því ekki.
Ég skil ekki boffs hvað er í gangi og hef enn ekki náð tilgangnum þrátt fyrir að vera að mínu mati enginn vitleysingur.
Nú þegar skilst mér að stúlka í mexico finnst ég vera 'sweet'. Ekki er það leiðinlegt og einhverstaðar gat ég smellt á einhvern hnapp þar sem ég þakkaði henni fyrir. Ég gat líka flengt hana svona rafrænt... hvað þýðir það?
Veit einhver hvernig þetta virkar? Hvers er ætlast af mér?
Nú hef ég bara reynt við kvenfólk í eigin persónu. Þetta netdæmi er nýtt fyrir mér og ég er alveg lost.
Það er svo flókið að vera til í dag. Í gamla daga stamaði maður á endanum út úr sér „þú ert ásættanlegur maki“ og fékk oftast bara þægilega höfnun og málið var dautt. Nú er stúlka frá Nýja sjálandi sem segir mig hafa falleg augu, hvað þýðir það??? Á ég að fara að skoða ódýr flug þangað?

Sprengjan
Hvað var sá maður að pæla? Það komu engin skilaboð sem oftast fylgja sprengjum, það var enginn "hópur" sem er ábyrgur og þannig stuff.
Ég held að þetta hafi bara verið random gaur að leika sér?
Afhverju haldið þið að þetta hafi verið gert?
Ég held að þetta hafi bara verið random gaur að leika sér?
Afhverju haldið þið að þetta hafi verið gert?
Categories: Koníakstofan
.is veltir 207 milljónum á ári
Internet á Íslandi hf. (ISNIC) velti 244 milljónum króna á árinu 2011 og hagnaðist um 55 milljónir króna. 206,9 milljónir króna, eða 85% af veltu félagsins, eru tekjur vegna landslénsins .is.
Mér finnst ekki eðlilegt að einkaaðilar hagnist á .is endingunni. Þú ert að borga fyrir að auðkenna síðuna íslenska. Á því græðir þú í raun og veru ekki neitt en þetta er sambærilegt því að þurfa að greiða ársgjald fyrir að flagga íslenska fánanum fyrir utan hjá þér.

Hallgrímur SI-77
Nú þegar þetta er skrifað eigum við þrjá sjómenn týnda á hafi úti en þeir voru hluti af fjögurra manna áhöfn á togaranum Hallgrími SI-77 sem var á sinni hinstu siglingu áður en hann færi í brotajárn.
Norska strandgæslan getur ekki leitað lengur vegna veðurs. Einn komst í flotgalla, hann bjargaðist, hann horfði upp á annan fara í flotgalla sem á að hafa lekið og veit ekki um hina tvo.
Árið 1992 fórst systraskip Hallgríms, Krossnesið SH 308 í góðu veðri og virtist hafa rifnað í tvennt. Þar björguðust níu manns en þrír fórust.
Líkurnar eru sjómönnunum okkar í hafinu verulega í óhag. Eins og svo hryggilega oft áður, þá bendir allt til þess að þrír sjómenn koma ekki heim úr vinnunni.
Þetta ljóð er eftir Einar Braga sem missti föður sinn, Sigurð, við Hornafjarðarós árið 1946.
Lítill kútur
lék í fjöru
og hló,
báran hvíta
barnsins huga
dró.
Langrar ævi
yndi og vos
á sjó,
báran svarta
bylti líki
og hló.
Við erum minnt á það í dag, enn og aftur, að hafið er stórhættulegt. Nútímatækni hefur lítið breytt því.
Þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef skrifað eitthvað hérna inn með tárin í augunum.
Þó fyrr hefði verið - gætu sumir sagt.

Föstudagskveld
Sælt veri fólkið.
Hvað er fólk að eyða þessu góða föstudagskvöldi í?
Ég er að spila mannmergðarálínufjölspilunarhlutverkaleik.
En hvað um það.
Ég hef lengi íhugað að skrifa svona spuna-Játningu og senda til Bleikt.is í von um að þeir samþykki tilbúna sögu um baráttu sextán ára stúlku við fjölkvæni, alnæmi og átröskun, og tel ég að þessu föstudagskvöldi mætti vel eyða í að semja slíka játningu.
Aðrar og álíka hugmyndir eru vel þegnar.

Mannið fallbyssurnar - Uppgjör við hrunið eða ekki
Nú á eftir fer fram umræða um tillögu Bjarna Ben að draga málið gegn Geir Haarde til baka svo Landsdómur fari ekki fram.
Ég hef heyrt talað um kl 10:30
Einu rökin fyrir því að málið verði dregið til baka eru þau að fyrst að aðeins Geir er ákærður en hinir ráðherrarnir 3 sem upphaflega var kosið um að ákæra líka, sleppa. Þá er ósanngjarnt að kæra Geir.
Það eru sömu rök og að ef lögreglan nær aðeins einum af fjórum grunuðum fjárglæpamönnum þá eigi að sleppa því að ákæra þennan eina því hinir ganga lausir. Það heldur ekki vatni.
Ef Geir er dreginn fyrir Landsdóm þá koma ýmsar upplýsingar í ljós í vitnaleiðslunum sem annar myndu ekki gera það. Þingmenn bæði núverandi og fyrrverandi eru á vitnalistanum og þeir myndu þurfa að mæta í réttarsal og bera vitni. Það er sama fólkið oft á tíðum sem nánast ekkert hefur talað um sinn þátt eða aðgerðir í sambandi við hrunið.
Sama hvort Geir sé saklaus eða sekur þá bind ég vonir við að viss upplausn muni ríkja meðal þeirra sem hafa eitthvað að fela og þeir gætu farið að benda á sekt hvors annars til að verja sjálfan sig.
Ef ákæran er dregin til baka þá skeður ekkert. Við Íslendingar erum þá að mínu mati bara aumingjar.
Hér er ágætur pistill um þetta mál og önnur: http://blog.eyjan.is/larahanna/2012/01/2...u-tilefni/

Einhverfa
Venjulegt fólk fast í líkama sem það stjórnar ekki.
Ég táraðist við að horfa á þetta. Þetta er eitthvað sem maður á erfitt með að ímynda sér en að því marki sem maður getur það þá er manni ljóst hversu ótrúlega erfitt þetta er. Stanslaust og hættir aldrei.
Ég táraðist við að horfa á þetta. Þetta er eitthvað sem maður á erfitt með að ímynda sér en að því marki sem maður getur það þá er manni ljóst hversu ótrúlega erfitt þetta er. Stanslaust og hættir aldrei.
Categories: Koníakstofan
Segja skotveiðarnar hafa lítil áhrif
http://visir.is/segja-skotveidarnar-hafa...2120109722
Quote:Þessu er SKOTVÍS ósammála og segir að ef hlýnun sjávar við Ísland sé staðreynd, með tilheyrandi breytingum á fæðuframboði, þá sé sennilegt að bjargfuglum muni fækka, hvað sem veiðum og hefðbundnum nytjum líði. SKOTVÍS leggst ekki gegn tímabundnum veiðum á álku og lunda en segir að algert veiðibann eða miklar takmarkanir á þeim veiðum sem nú tíðkast sé marklaus aðgerð og muni spilla fyrir trú veiðimanna á fyrirkomulagi veiðistjórnunar á Íslandi.
Að hugsandi fólk skuli láta svona þvætting út úr sér gerir mann eiginlega bara brjálaðan.
Ef fugli fækkar vegna erfiðra lífsskilyrða þá gera skotveiðar lítið annað en að gera lífsbaráttu þeirra enn erfiðari. Það skiptir engu máli hversu margir fuglar eru veiddir.
Þessir menn vilja fá að plaffa fugla sem fer fækkandi vegna fæðuskorts sem kominn er að vegna hlýnunar jarðar.
Þvílíkir veiðimenn.
Hvað varðar trú veiðimanna á fyrirkomulagi veiðistjórnunar þá sé ég ekki að hún komi málinu við.

Gleðilegt nýtt ár
Orð fá ekki lýst hversu vænt mér þykir um ykkur.
Síðan Sannleikurinn.com væri ekki eins vinsæl og hún er ef ekki væri fyrir ykkur. Hér get ég leitað ráða og vitsmuna frá mörgum mismunandi einstaklingum. Þið eruð snillingar, öllsömul.
Gleðilegt nýtt ár vinir mínir.
Síðan Sannleikurinn.com væri ekki eins vinsæl og hún er ef ekki væri fyrir ykkur. Hér get ég leitað ráða og vitsmuna frá mörgum mismunandi einstaklingum. Þið eruð snillingar, öllsömul.
Gleðilegt nýtt ár vinir mínir.
Categories: Koníakstofan
Facebookreglurnar 14
Ég er leiður á því hvað fólk sem allt í einu uppgötvar internetin fer að leggja öðrum reglur um óáskilega hegðun á því.
Hérna eru 14 reglur frá sérfræðing í hættunum sem steðja að samböndum vegna Facebook. - Þetta er af Pressuni til að vara þá við sem það kunna vilja.
Quote:Eftirfarandi liðir virðast vera aðaláhættuþættirnir og flokkast sem óæskileg samskiptahegðun á Facebook:
Að vera ekki með hjúskaparstöðu rétt skráða
Nota Facebook einu sinni á dag eða oftar
Fara inn á stefnumótaleiki í föstu sambandi
Vera sýndur áhugi af öðrum en maka
Hafa fengið „pot“ frá einhverjum í daðursskyni frá öðrum en maka
Hafa „potað“ í annan en maka í daðursskyni
Samþykkja vinabeiðni frá fólki sem það ekki þekkir
Stofna til kynna við einhvern sem það ekki þekkir
Samþykkja vinabeiðni gamals vinar eða senda
Hafa leynt samskiptum á Facebook fyrir maka
Hafa leynt samskiptum fyrir maka í rómantískum tilgangi
Vera með fyrrverandi kærustu eða kærasta á Facebook
Facebook-samskipti viðkomandi hafa valdið rifrildi
Pör eða hjón vita ekki leyniorð hvors annars
Eftir stöndum við með BA ritgerð sjálfskipaðs sérfræðings sem í enda dagsins segir ekkert nema það að þeir sem vilja halda framhjá gera það og þeir sem vilja tortryggja maka sinn gera það líka.
Sérdeilis frábært.
Ef maki minn væri óánægður með eftirfarandi Facebook hegðun hjá mér:
Quote:Nota Facebook einu sinni á dag eða oftar

Þá væri hann ekki hæfur til að vera maki minn og ég myndi ekki nenna viðkomandi.

Miðlar
Miðlar eru áhugavert fyrirbrigði. Það virðist eins og þeir hafi nóg að gera.
Darren Brown er einn besti miðillinn þarna úti.
Hann er líka áhugamaður um svindl og hefur gert þætti þar sem hann sýnir fram á að hann geti gert það sama og þeir. Hann getur semsagt gert það án þess að hafa miðilsgáfu sjálfur.
Hér er brot:
Þar sem miðlar eru mismunandi einstaklingar þá geta þeir alltaf sagt „ég er alvöru þó aðrir séu loddarar.“
Vísindin geta ekki afsannað miðla þó þau hafi sýnt fram á hvernig er hægt að líkja eftir þeim.
Í hvert sinn sem einhver segist hafa hæfileikann þá þurfum við annaðhvort að hunsa hann, mótmæla honum eða samþykkja hann. Við verðum bara hver og eitt að taka okkar afstöðu.
Ég ætla persónulega að ráðast á þá sem loddara. Harkalega.
Ég get rökstutt það þannig að þó ég sé skeptískur að eðlisfari þá er mjög auðvelt fyrir miðil að sýna hæfileika sína ef hann vill en þar sem miðlar halda einhverju fram sem er ósannað þá tek ég þá default afstöðu sem er líklegust, - að þeir séu loddarar.
Ef þeir eru loddarar þá eru þeir að spila með tilfinningar fólks og eru annaðhvort geðveikir eða illmenni. - Jafnvel bæði.
Þeir geta drullast til að sýna fram á gagnsemi sína en þangað til þeir gera það þá eru þetta sálarhryðjuverkamenn sem mæta fyrirlitningu minni.
Categories: Koníakstofan
Omega er fyrir fávita
http://eyjan.is/2011/12/14/omega-vill-pe...yrkursins/
Quote:Kristilega sjónvarpsstöðin Omega hefur í þrjú ár í röð sent stúlku í Reykjavík bréf og gíróseðla með ákalli um að styðja stöðina fjárhagslega.
Omega lifir á þeim sem hafa orðið undir í lífinu eða þeim sem hafa ekki lifað nógu lengi til að þróa með sér gagnrýna hugsun. Veikleika nota þessir menn gegn fólki eins og eiturlyfjasalar en eru þó eru bara að selja loftið tómt.
Það er ekkert kristilegt við þetta.
Ef mér 9 ára hefði verið sent þetta þá, hafandi enga peninga sjálfur, hefði ég reynt að sannfæra foreldra mína til að borga.

Nammi
Jæja krakkar, hvað er uppáhaldsnammið ykkar? Ég sjálf á mörg uppáhaldsnömm enda nammisjúklingur.
Categories: Koníakstofan
Góðar greinar
Þetta er án efa ein besta grein sem ég hef lesið lengi.
http://oforganon.tumblr.com/post/1115074...okes-are-a
http://oforganon.tumblr.com/post/1115074...okes-are-a
Categories: Koníakstofan
Bein lína
Sá sem kemur í gegn tvíræðustu eða vandræðalegustu spurningunni vinnur.
Gólfið eru ykkar!
http://www.dv.is/beinlina/
Gólfið eru ykkar!
http://www.dv.is/beinlina/
Categories: Koníakstofan
Lifa endalaust útskýrt
Að snúa öldrun við er hrollvekjandi hugmynd. Ég efast um að þeir best settu í samfélaginu væru til í að samþykkja að þeir sem væru lægra settir fengju að gera það líka. Allavega ekki án þess að eitthvað yrði gert í fólksfjölgun.
Þrátt fyrir að það sé ósanngjarnt að þetta væri bara í boði fyrir einhverja elítu þá væri það óráði, ef það væri einhverntímann hægt að snúa við eða stöðva öldrun, að hafa ekki einhverja reglu á barneignum.
En hver á að ákveða þær? Stjórnmálamenn?
Stæði þetta venjulegu fólki til boða eða bara fáum útvöldum sem hafa sambönd og völd?
Categories: Koníakstofan
Fjárkúganir með kynlífsmyndum
Áfram Gunnlaugur!
Um er að ræða kynlífsmyndir af mér á meðan ég var í sukkinu. Það er búið að reyna að beita mig fjárkúgun og hóta því að myndirnar fari í dreifingu en ég er atvinnulaus og á enga peninga. Það er líka búið að senda systur minni þessar myndir og fara fram á peninga. Nú reyna þeir fjölmiðlana. Mestu skiptir samt að ég ætla ekki að beygja mig fyrir svona glæpamönnum.
Ég hef aldrei skilið svona dæmi. Kynlíf er eitthvað sem allir stunda og það að til séu myndir af manni við þá iðju ætti ekki að slá mann af laginu. Það er einhver dýpri rót þar á bakvið.
Kynlíf er af einhverjum ástæðum stundum sett upp sem neikvætt og þá oftast af sjálfskipuðum siðalöggum sem stunda nákvæmlega sömu iðju.
Til fjandans með þá.