Beint á blogg

Spjallborðið

Syndicate content
Sannleikurinn - http://www.sannleikurinn.com/koniakstofan
Updated: 2 klst 53 min síðan

Hlaðvarp

16 May 12
Eru mörg ykkar að hlusta á einhver íslensk pod-cöst?
Ég og góð vinur minn höfum verið að gæla við hugmyndina um að starta svona ósóma og mér datt í hug að tékka hvort einhverjir væru að hlusta á svona.
Categories: Spjallborðið

Flickmylife fokköpps.

11 May 12
Ég hef tekið eftir undanfarið að gaurinn sem sér um Flickmylife síðuna virðist verða heimskari og heimskari eftir því sem á líður.
Fyrir nokkru var það þetta

http://www.flickmylife.com/?s=pace

Sem hann leiðrétti þó, en það nýjasta er þetta hér.

http://www.flickmylife.com/archives/22971

Hvernig er öfugt 9 eins og g? venjulegt 9 er eins og g ef maður er lesblindur en hvernig fær hann út að öfugt G er 9?
Categories: Spjallborðið

Smáauglýsingar.

10 May 12
Bara til að þessi vefur taki nú enn eitt skrefið í átt að því að breytast í fokkings barnaland, og mig langar ekki að skrá mig á þann vef bara til að setja inn auglýsingu og ég er að verða svolítið desperat, þá ætla ég hér með að stofna smáauglýsingaþráð og biðja ykkur um að kíkja á þessa hér...

https://www.facebook.com/note.php?note_i...2320294475

og endilega deila ef þið viljið ekki kaupa.
Categories: Spjallborðið

Diablo III

9 May 12
Þessir eru ready!

Categories: Spjallborðið

Flashmob

9 May 12
Mjög töff Flashmob í Kaupmannahöfn

Categories: Spjallborðið

Sannleikurinn 3.0

3 May 12
Ég er á fullu að kóða nýja vefsíðu fyrir Sannleikann og er að gera hana í Drupal eins og fyrri. Þetta verður massíf breyting.
Fréttasíðan verður í miklum æsifréttastíl eins og tíðkast víða erlendis og það verður mikið að gerast á henni.

Eins og er myndi ég segja að ég sé búinn með 1/4 hluta þess sem þarf að gera en þá er ég ekki að taka með CSS föndrið allt enda er CSS varla forritun, meira svona föndur. Velja liti, setja í kassa og eitthvað dútl.

Helstu breytingarnar eru enn sem komið er þessar:

*Ég hugsa að ég kóði inn möguleikann á því að setja fyrirsagnir undir myndir í fréttunum. Það hefur oft verið bent á að það sé voða skemmtilegt.

*Forsíðan verður í fyrsta skiptið farmsímavædd.

*Efnistök verða meiri. Það verður ekkert lengur sem Sannleikanum er óviðkomandi. Fréttir, pistlar, tískublogg, gagnrýni, raddir fólksins, eitthvað heilalaust uppfyllingarefni, veðrið, sérvefir og allskonar helvítis drasl verður þarna áfram eða kemur nýtt inn.

*Efnið í kringum síðuna verður sérvalið miðað við hvar þú ert á henni. Ef þú ert að skoða íþróttafrétt þá verða íþróttafréttir í kringum fréttina, svo dæmi séu tekin.

*Þeir notendur spjallborðsins sem vilja geta sett inn efni á forsíðuna sjálfir. Þetta er huge breyting þar sem ég var svo paranoid í upphafi að ég leyfði aðeins fáum útvöldum aðgengi að pistlakerfinu. Nú munu þið hinsvegar geta sett inn fréttir sjálf og það á einfaldan hátt í hálfgerðu word-umhverfi.

*Hópar eða einstaklingar geta sótt um að halda úti sérvefum innan Sannleikans sem yrðu hluti af síðunni. Sérvefirnir þurfa ekkert endilega að vera grín en það er vel séð. Þeir þurfa bara að fjalla um eitthvað ákveðið efni.
Í einföldu máli þýðir það að ef einhverjir vilja stofna vef um t.d. tölvuleiki, snjallsíma, körfubolta, förðun, flug, prjónaskap, skák eða bara hvað sem er, þá geri ég það fyrir þá og læt þá hafa lyklana. Það eina sem þeir þurfa að gera er að skrifa efni og við komum með lesendurna.

Tvö dæmi:

Mbl.is heldur úti vefnum Smartland Mörtu Maríu. Hann er leiðinlegur og næstum allt sem þar er skrifað er kjaftæði. Við myndum aldrei leyfa henni að skrifa stakt orð á Sannleikann. En ef einhver með viti kemur og vill skrifa um lífstíl á gamansömum og fróðlegum nótum þá getur hann talað við okkur, ég verð með allt tilbúið. Viðkomandi fær svæði sem virkar alveg eins og Smartlandið, er ritstjóri þar og getur sjálfur selt auglýsingar á sinn sérvef! Við myndum bara alveg eins og Mbl gerir, innleiða efnið, dreifa því og láta það vinna með okkar venjulegu skrifum.

Simon.is er annar vefur sem nokkrir strákar sem ég þekki halda úti. Hann fjallar um snjallsíma og hluti tengda þeim. Það er dæmi um vef sem snilld væri að innleiða inn í Sannleikann.com
Það myndi ekkert breytast hjá þeim. Simon.is virkar enn og lítur alveg eins út. Fréttir frá þeim myndu birtast á ákveðnu svæði á forsíðu Sannleikans alveg sjálfvirkt og báðir vefirnir myndu fá traffíkina og þeir auglýsingatekjurnar áfram af sínum vef. Þær myndu bara aukast því þeir fengju traffík beint frá okkur.

*Sannleikurinn verður ekki lengur áhugamál til að drepa tímann. Ég mun líta á hann sem vinnuna mína. Hin vinnan mín verður bara að mæta afgangi.

*Sannleikurinn útvíkkar sig á Twitter

*Sannleikurinn gefur út mánaðarlegt fréttabréf gegnum sérstakt email póstlistakerfi sem ég er kominn með til þeirra sem vilja.

*Spjallborðið verður fokking áberandi á forsíðunni.

--
Jæja. Ég ætla að halda áfram að forrita. Það er nóg að gera.

Ég ætla að henda inn myndum við og við af nýju forsíðunni. Hafa skal þó í huga að ekkert sem hér birtist er harðákveðið. Mér er alltaf að snúast hugur og breyta.



Fyrstu fréttirnar sem blasa við manni á nýju forsíðunni. Fréttinni með stóru myndinni til vinstri er skipt út sjálfkrafa af síðunni á ca. 7 sekúndna fresti.


Fréttunum er loksins skipt almennilega upp í flokka. Þegar þú ert síðan að lesa frétt um stjórnmál þá eru aðrar stjórnmálafréttir í dálkum til hliðar.
Categories: Spjallborðið

Tabletop

2 May 12
Snilldarþáttur. Wil Wheaton, mikill njörður sem einhver þekkir kannski sem erkióvin Sheldon í Big Bang Theory, er með þátt þar sem hann fær til sín fólk að spila eitthvað borðspil.
Mér fannst þetta svo skemmtilegt að ég fór niður í Nexus og keypti spilið.

Quote:Wil Wheaton and guests, Sean Plott (host of "Day9TV", a Starcraft II dedicated webcast on how to be a better gamer), Grant Imahara (host of Discovery Channel's "Mythbusters"), and Jenna Busch (geek blogger, writer and host) play Small World!
Categories: Spjallborðið

Bévítans Skerfarinn

1 May 12
Jebb
Categories: Spjallborðið

Þorpið hans Bubba

30 Apr 12
Ég heyrði þetta lag í framhjáhlaupi um daginn og fannst það bara ágætt... fannst Bubbi ver að jafna sig á niðurlægingartímabili þar sem hann hefur verið að spila Það er gott að elska með mismunandi takti í 20 ár.
En svo asnaðist ég til að hlusta það aftur og heyrði textann, þá sannaðist það endanlega fyrir mér að Bubba er algerlega óviðbjargandi og hvernig hann gat dregið Mugison ofan í þetta skítasvað með sér veit ég ekki.
Þetta lag er með ólíkindum ef maður hlustar á textann. Skítt með stuðla og höfuðstafi, skítt með að halda sig við eina ljóðaformgerð og skítt með það að þetta er sömu efniistok og í Aldrei fór ég Suður og var skömminni skárra þá, þó því hafi verið stolið af Bruce Springsteen og hét þá The River.

En rímið í þessum texta er alveg eins og þegar 10 ára barn ákveður að semja ljóð og rímar bara orð af því þau hljóma eins.
Code:
Unga fólkið er fyrir sunnan að vinna
gamla fólkið varð eftir með nál og tvinna
út á firði er enga drauma að finna
þorpið er að þurkast út.
Meira að segja bragsóðinn ég gat samið aukaerindi fyrir þessa hörmung á 3 mínútum.

Code:
Það getur verið töluverð glíma
og jafnvel tekið dágóðan tíma
að finna orð á íslensku sem ríma
nema maður eigi rímorðabók
Categories: Spjallborðið

Disney teiknimyndasögur ánetinu

28 Apr 12
Fyrir þá sem ekki vita þá er hægt að lesa úrvalsögur um Andrés Önd, Mikka Mús og félaga á netnu. Þetta eru mest megnis sögur á ensku eftir Ameríska höfunda. En ekki Evrópska eins og tíðkast í því efni sem er gefið út hér á landi.
http://disneycomics.free.fr/
Categories: Spjallborðið

Ekkert sniðugar og fullkomlega ófyndnar myndir af Internetunum

27 Apr 12
Ég skal byrja leiðindin:


Categories: Spjallborðið

Prófljóta

27 Apr 12
Plebbinn.is er veftímarit sem er mér ákaflega þóknanlegt. Þar kennir ýmissa grasa og margt fróðlegt kemur manni fyrir sjónir, oft sett upp á fágaðan og andlega uppörvandi máta.

Hér fjalla heiðursmennirnir á plebbanum um eitthvað almúgavandamál sem kallast prófljóta. Ekki kannast ég nú sjálfur við fyrirbrigðið þar sem ég keypti mína menntun dýrum dómum erlendis en málefnið er engu að síður þarft.

Opið bréf til námsmanna

Quote:Prófljóta er það ástand þar sem einstaklingur, sem eitt sinn hafði sjálfsvirðingu, ákveður að kasta henni (sjálfsvirðingunni) út um gluggann (eða ofan í tunnu eða eitthvert þar sem hún á ekki að vera) og leggja hendur í skaut, árar í bát, breiða sængina yfir hausinn og hætta. Hætta að sýna sjálfum sér og umhverfi sínu þá sjálfsögðu virðingu að koma snyrtilega og vel til hafður fyrir. Hætta að vakna á morgnana og ákveða að takast á við daginn með bros á vör og háleit markmið. Hætta að vera flottur.
Ég veit og skil að það að rita þessi orð hér á þennan vettvang er eins og að kasta perlum fyrir svín en ef þið hafið einhverja sómatilfinningu þá sýnið þið þessari baráttu þeirra stuðning í orði eða verki.
Categories: Spjallborðið

Borðspil, næstu skref og nýr áningastaður fyrir nörda á netinu

25 Apr 12
Eins og komið hefur fram á öðrum þræði þá er ég að búa til nýtt íslenskt borðspil í anda Catan/Hættuspilsins og Útvegspilsins gamla sem fjallar um íslenska pólitík þar sem hver leikmaður spilar stjórnmálaflokk sem reynir að komast til valda á Íslandi.
Það er ekki lítið verkefni, það er kostnaðarsamt og höfuðverkjavaldandi.
Ég hef þó gefið þessu mikla hugsun og er með næstu skref fram í tímann vel kortlögð til að þetta heppnist sem best.

Fyrsta skrefið er að gerast dóminerandi aðili á netinu hvað varðar umræðu, gagnrýni og umfjöllun um borðspil, njarðamenningu og hugðarefni vel þenkjandi fólks. Því er ég langt kominn með nýja heimasíðu sem mun sérhæfa sig í að fjalla um spilamennsku og önnur áhugamál okkar sem teljast til 'nörda'.

Ég verandi massífur spilanjörður mun ásamt þeim sem vilja, fjalla þar reglulega um geðveikt skemmtilega hluti með sérstaka áherslu á spil.
Þó verður fjallað um ýmislegt annað áhugavert þar eins og tölvuleiki, öpp (eða apa eins og ég kalla það) fyrir snjallsíma og lófatölvur, nördalegar kvikmyndir, teiknimyndasögur, skáldsögur, vélmenni, fjarstýrða bíla og flugvélar, kaffudrykkju og tónlist. Það er þó ekki ætlunin að fjalla um hluti sem aðrir fjalla um.
Mér er t.d. nokk drullusama um nýjustu þrívíddar tölvuleikina sem þurfa skjákort úr framtíðinni til að keyra og kvikmyndir sem ekki er beint sérstaklega til þeirra okkar sem hafa vit í kollinum. Þetta mainstream Fm957 drasl sem er alltaf svo vinsælt meðal fávita má éta drullu.
Þessi síða verður í raun og veru soldið eins og búðin Nexus á Hverfisgötu í greinaformi og ég mun reyna að upphefja nördaskap upp í hæstu hæðir á kostnað þeirra sem hneigast frekar til íþrótta, útlitsdýrkunar og mannskemmandi raunveruleikaselebritíþvælu.

Eins og ég sagði þá er þetta fyrsta skrefið í metnaðarfullri áætlun minni. Grunnurinn að síðunni er kominn upp, henni er tjaslað saman úr ýmsum áttum og ég á eftir að gera ýmislegt, eins og að þýða vefumsjónarkerfið, finna eitthvað logo, fiffa útlit og skipuleggja efnistök betur.

Þetta er þráður undir þetta verkefni mitt og vonandi uppfæri ég hann sem oftast.
Hér er fyrsta screenshotið af síðunni. Það sem er þar skrifað núna er eitthvað bull í mér sem uppfyllingarefni á meðan ég er að setja síðuna upp. Svona til að ég sjái hvernig hún muni líta út.

Categories: Spjallborðið

Gölluð lög

24 Apr 12
Ég var hlekkjaður inn á almenn hegningarlög áðan, og rakst þá á þetta:Almenn hegningarlög Wrote:216. gr. Kvenmaður, sem deyðir fóstur sitt, skal sæta …1) fangelsi allt að 2 árum. Ef sérstaklega ríkar málsbætur eru fyrir hendi, má ákveða, að refsing falli niður. Mál skal ekki höfða, ef 2 ár eru liðin frá því að brot var framið. Ónothæf tilraun er refsilaus.
Hver, sem með samþykki móður deyðir fóstur hennar eða ljær henni lið sitt til fóstureyðingar, skal sæta fangelsi allt að 4 árum. Sé um mikla sök að ræða, einkum ef verknaðurinn er framinn í ávinningsskyni eða hann hefur haft í för með sér dauða eða stórfellt heilsutjón móður, skal beita allt að 8 ára fangelsi. Hafi verkið verið framið án samþykkis móður, skal refsing vera fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 12 árum. Þýðir þetta að ef ég, sem læknir, (að námi loknu, að sjálfsögðu) hjálpa konu við að rjúfa meðgöngu, þá eigi ég að fara í fangelsi fyrir það? Eða á þetta bara við eftir að frestur til meðgöngurofs er útrunninn? Ekki sénsinn að ég nenni að leita að fleiri svona lögum í augnablikinu, en þarna er eitthvað rotið í Baunaveldi.
Categories: Spjallborðið

Loftsteinanámugröftur.

24 Apr 12
Seinna í dag ætlar James Cameron og nokkrir eigendur Google og aðrir margmilljónerar að halda fréttamannafund þar sem þeir munu tilkyna stofnun fyrirtækis sem á að vinna að því að gera námugröft á loftsteinum mögulegan. þeir ætla sem sagt að grípa loftsteina og vinna úr þeim þá málma og efni sem þar er að finna og á þetta að auka veltu jarðarbúa um margar billjón skrilljónir...(sem sagt þeir ríku verða ríkari og svo framvegins. .

Þó þetta virðist fjarstæðukennt finnst mér flott að þeir eru alla vega að reyna, þetta hleypir allavega lífi í framfarir í geimflaugatækni og ætti að veraatvinnuskapandi...

Og hver veit nema einhverjir EVE online spilarar eigi eftir að finna þarna sitt framtíðarstarf.

Meira hér.
http://io9.com/5904599/its-official-jame...oid+mining
Categories: Spjallborðið

Átt þú barn í vændum?

24 Apr 12
Það er víst enn verra en að eiga barn í vændi.
Categories: Spjallborðið

Leikskólinn Alþingi.

23 Apr 12
Þegar þið horfið á alþingis útsendingar fáið þið aldrei á tilfinningunni að alþingismenn og konur eru verri en smábörn á leikskóla?

Ef Alþingi væri nú leikskóli í raun og veru þá myndi ég ímynda mér það að samanburðurinn við aðra leikskóla væri einhvernveginn svona: Þegar alþingismenn byrja að drullamalla þá verður drullumallið munn vera og svænara á nokkrum öðrum leikskóla landsins. Í öðrum leikskólum landsins geta börn verið í sátt og samlyndi í drullumallinu og deila drullu kökunum í saman. Á alþingi keppast menn við það að baka drullu kökur til þess að kasta þeim í námungan þangað til að hann fer að grenja undan því í ræðustól eða í fjölmiðlum, eru all mörg dæmi um þetta . Þannig að mikilvægu málinn gleymast, sem gerir það að verkum að Leikskólinn alþingi hefur miklumeiri áhrif út í samfélagið en aðrir leikskólar. Ekki veit ég hvaða snillingur ákvað það að leikskólinn alþingi færi með æðsta lögjafarvald á Íslandi.
Categories: Spjallborðið

Illa ígrundaðar pælingar (ekki fyrir viðkvæma)

23 Apr 12
Þennan þráð vantaði nauðsynlega. Stundum dettur mér eitthvað í hug sem ég þori varla að segja og á eiginlega hvergi annarstaðar heima.... en ég vil endilega heyra hvað aðrir hafa um málið að segja.

Ég var að velta því fyrir mér áðan hvort að fólk smakkist mismunandi eftir kynþáttum? Til dæmis ef maður hefði steikur á borði af fólki sem allt hefði alist upp við sömu lífsgæði, finndi maður bragðmun á evrópskt ættuðu fólki, afrískt ættuðu fólki eða austurlensku fólki? Og myndu indjánar bragðast svipað og austurlenskt fólk? Og hvar koma indverjar og mið-austurlandabúar inn í dæmið?

Mér flaug þetta í hug þegar ég var að borða epli. Það er svo ótrúlega fjölbreytt bragð af hinum ýmsu eplategundum, t.d. eftir því hvort eplið er rautt, grænt eða gult.
Categories: Spjallborðið

Vorboðar

23 Apr 12
Nú er lóan talinn með helstu vorboðum landsins en ég held þeir séu fleiri. Hér er einn óumdeilanlegur vorboði.



Þorvaldur Gylfason rólar.
Categories: Spjallborðið