Beint á blogg

Spjallborðið

SModcast.

Spjallborðið - 21 Feb 12
Mig langaði að deila þessu með ykkur hef ofboðslega gaman af þessu vef útvarpi og þá sérstaklega þessum þætti.
Þetta eru mest megnis skemmtilegir dægurþættir þar sem maður fær oft skemmtilega (og mjög, mjög, nána útlistun) á daglegu lífi þáttastjórnendana.
Myndin tengist ekki beint efni þráðsins.

  1265316208754.jpg (Size: 56.29 KB / Downloads: 1)
Categories: Spjallborðið

Veðrið

Spjallborðið - 17 Feb 12


Okei. Veður, hlustaðu nú! Ég er kominn með fokking nóg. Farðu að ákveða þig eða við skiptum þér út fyrir eitthvað annað. Hvað á það að þýða að láta mann halda að allt yrði nú í lagi, það versta væri liðið en koma svo aftan að manni með þennan helvítis snjó og þessa rugluðu hálku sem leynist undir honum á gangstéttunum.
Ég er heppinn að vera á lífi eftir að hafa rölt heim úr vinnunni.

Hversu flókið er að vera bara með þetta á eðlilegum nótum. Snjór kemur smátt og smátt og dvínar svo jafnt og þétt út eftir að vorið nálgast. Ekki henda þessu þvers og kruss eins og flogaveikur málari að rembast við að komast inn á listamannalaunalistann svona vikur áður en ákvörðun um hann er tekin.

Það er 21. öldin, allt hefur þróast nema þú!
Categories: Spjallborðið

Hættur að reykja

Spjallborðið - 13 Feb 12
Ég hætti að reykja í gærkvöldi. Þetta var komið gott.

En þar sem ég þekki mig þá veit ég að ég gæti þurft hjálp. Ég ætla að nota tvær aðferðir, önnur er ný og fundin upp af mér.

Ég er miklu háðari reykingum andlega heldur en líkamlega. Ef ég er alveg að drepast úr líkamlegri þörf þá er ég með íslenskt neftóbak sem ég fæ mér í vörina. Einu sinni til þrisvar á dag, vef það í pappír og skammta mér alltaf minna og minna. Svona hálfgerð niðurtröppun. Þetta er ekkert mál.

Ég hef notað reykingar til að fá frið til að hugsa og andlegi vaninn er miklu miklu meira vandamál en fíknin. Til að stoppa mig af ef ég er alveg að gefast upp hef ég fundið upp aðferð sem gerir mér ókleift að falla þegar hættan á því er mest. - Heima hjá mér í tölvunni.
Ég er alveg nógu viljasterkur til að sleppa því að reykja þegar ég er úti að gera eitthvað en aumingjaskapurinn í mér er mestur þegar ég er heima fyrir.

Til að nota þessa nýju aðferð mína þarf: 1-2 ketti og handjárn.

Skref 1: Sá sem er að hætta og vill fyrirbyggja það að hann fari út í búð að kaupa sígarrettur, festir handjárnalykil vandlega við hálsól á ketti. Í þessu tilfelli notast ég við Skaða sem er líklegri til að vera aðeins lengur úti en hinn kötturinn í minni eigu.


Skref 2: Næst þegar maður er alveg að snappa og er farinn að hugsa um að gefast upp þá handjárnar maður sig snögglega við skrifborðsstólinn.


Skref 3: Opna gluggan eins og skot og hleypa Skaða út með handjárnalykilinn!


Skaði kemur vanalega aftur heim eftir svona 2-3 tíma. Ég er ekki að fara út í sjoppu handjárnaður við skrifborðsstólinn minn. Ef svo ólíklega vill til að ég er enn að drepast þegar hún kemur heim þá er ég með kött númer 2, Technoköttinn, á standby til að endurtaka leikinn.

Categories: Spjallborðið

Áfengisský

Spjallborðið - 11 Feb 12
Það er.. ský þarna úti í geimnum. Sem inniheldur nóg alkahól í 400 trillion trillion bjóra.
http://www.fermentarium.com/random-news/...s-of-beer/

Hvað er maður að gera hérna á þessari plánetu.
Categories: Spjallborðið

Áskorun - Kexi, Snorri og Ragnar Thor

Spjallborðið - 11 Feb 12
Ég kom heim af næturvakt og nennti ekki að fara að sofa strax. Ég lenti í rökræðum við mjög erfiðan andstæðing, Ragnar, um Snorra í Betel.
Eftir smá rökræður á vegg Ragnars þá höfum við ákveðið að skora á skólastjóran í Brekkuskóla á Akureyri og Snorra í Betel í rökræður.

Snorri, sem er á móti samkynhneigð, Ragnar, sem finnst að kennarar eigi rétt á því að hafa þessar skoðanir, og ég sem er á þeirri línu að Snorri eigi ekki að fá að kenna börnum í skólakerfinu.

http://maurildi.blogspot.com/2012/02/ask...la-og.html

Vonandi verður þessari áskorun tekið.
Categories: Spjallborðið

Chris Langan:The Smartest Man In The World

Spjallborðið - 11 Feb 12
Chris Langan er einn klárasti einstaklingur sem uppi er í dag. Hann er snillingur.

Hann er hinsvegar útkastari á bar og hefur ekki gert neitt með líf sitt. Hann hefur þó verið rannsakaður mikið og er fjallað um hann í bókinni Outliers td.

Hann var beittur ofbeldi og kúgaður í æsku og fékk engin tækifæri í lífinu.
Ef Chris hefði alist upp á góðu heimili þá hefði hann getað gert eitthvað stórkostlegt. En svo varð ekki rauninn.




Quote:The man profiled in Malcolm Gladwell's "Outliers" who lacked the practical intelligence for success.

The whole premise of the book is that the story of the bootstrapping lone ranger that single handedly overcomes life's obstacles and rises to the pinnacle of life, like a phoenix rising from the ashes, is a myth.

He writes about two individuals Chris Langan and Oppenheimer. Both these men are geniuses. You probably heard of Oppenheimer, the father of the atomic bomb.

You may have never heard about Chris Langan and that is the whole point. Chris Langan was born a genius. He had taught himself how to read by the age of three. He breezed through school never having to take notes or prepare for exams like us mere mortals.

He liked academia. Where do you think he ended up. In a bar working as a bouncer! The difference between the two was that Chris Langan lacked practical intelligence. Social psychologists define practical intelligence as the ability to say the right thing at the right time to the right person. I define social intelligence as "Street Smarts". One telling example of the lack of social intelligence on the part of Chris Langan was an anecdote where he argues with the Calculus professor and is rebuffed by the professor who says that Chris Langan lacks the intelligence to appreciate mathematics
Categories: Spjallborðið

Starnold

Spjallborðið - 11 Feb 12
Categories: Spjallborðið

My Neighbor Totoro

Spjallborðið - 10 Feb 12
Geðveik mynd en eftir að hafa lesið þetta þá er ég alveg

http://my.opera.com/sukekomashi-gaijin/b...-no-totoro
Categories: Spjallborðið

Gagnrýni - 2001 Geim Ödipus

Spjallborðið - 10 Feb 12


Stórir hlutir að hreyfast hægt.
Categories: Spjallborðið

Út úr skápnum á mbl

Spjallborðið - 7 Feb 12
Mbl hefur verið að ræða við samkynhneigða undanfarið og taka við þá viðtöl.
Þetta viðtal við Haffa Haff er eitt það merkilegasta sem ég hef séð í langan tíma. Hann er hreinskilinn og ræðir um líf sitt á þann hátt sem ég hef ekki séð aðra gera áður.
Maður breytir ekkert kynhneigð sinni. En samfélagið og væntingar þess eru öll á hlið okkar sem erum gagnkynhneigð.
Það hlýtur að skapa vandræði fyrir þá sem falla ekki inn í hefðbundin fjölskyldumót og maðurinn er æði fyrir að tjá sig á hreinskilinn hátt um það.
Categories: Spjallborðið

Sannleikur eða lygi á Smartlandi? Hvoru trúir þú?

Spjallborðið - 5 Feb 12
Hér er glæsilegur pistill um hvernig Smartlandið virkar.

Quote:Ég er búinn að vera mjög tvístígandi að halda áfram skrifum mínum á Smartlandi en ég hef verið hvattur til þess að halda áfram þar sem það séu svo fáar raddir skynseminnar og vísindanna þarna á Smartlandinu að það væri verra að vera þar ekki. En nú veit ég barasta ekki lengur.
Fyrir utan hvað hann hefur rétt fyrir sér þarna þá elska ég það að þarna er gagnrýni á Smartlandið á Smartlandinu sjálfu.
Categories: Spjallborðið

faggalicious á Facebook

Spjallborðið - 3 Feb 12
Ég tók eftir því að einhverjar vinir mínir eru að nota eitthvað Facebook dæmi sem heitir taggalicious. Ég ákvað að prófa. Ég er einhleypur og því ekki.

Ég skil ekki boffs hvað er í gangi og hef enn ekki náð tilgangnum þrátt fyrir að vera að mínu mati enginn vitleysingur.
Nú þegar skilst mér að stúlka í mexico finnst ég vera 'sweet'. Ekki er það leiðinlegt og einhverstaðar gat ég smellt á einhvern hnapp þar sem ég þakkaði henni fyrir. Ég gat líka flengt hana svona rafrænt... hvað þýðir það?

Veit einhver hvernig þetta virkar? Hvers er ætlast af mér?
Nú hef ég bara reynt við kvenfólk í eigin persónu. Þetta netdæmi er nýtt fyrir mér og ég er alveg lost.

Það er svo flókið að vera til í dag. Í gamla daga stamaði maður á endanum út úr sér „þú ert ásættanlegur maki“ og fékk oftast bara þægilega höfnun og málið var dautt. Nú er stúlka frá Nýja sjálandi sem segir mig hafa falleg augu, hvað þýðir það??? Á ég að fara að skoða ódýr flug þangað?
Categories: Spjallborðið

Sprengjan

Spjallborðið - 2 Feb 12
Hvað var sá maður að pæla? Það komu engin skilaboð sem oftast fylgja sprengjum, það var enginn "hópur" sem er ábyrgur og þannig stuff.

Ég held að þetta hafi bara verið random gaur að leika sér?



Afhverju haldið þið að þetta hafi verið gert?
Categories: Spjallborðið

Glaður í bragði

Spjallborðið - 2 Feb 12

Getur einhver toppað þetta eða orðað betur?

Maður og frosinn skyndibiti finna hvorn annan eftir að hafa verið aðskildir við fæðingu.
Categories: Spjallborðið

.is veltir 207 milljónum á ári

Spjallborðið - 31 Jan 12
Internet á Íslandi hf. (ISNIC) velti 244 milljónum króna á árinu 2011 og hagnaðist um 55 milljónir króna. 206,9 milljónir króna, eða 85% af veltu félagsins, eru tekjur vegna landslénsins .is.

Mér finnst ekki eðlilegt að einkaaðilar hagnist á .is endingunni. Þú ert að borga fyrir að auðkenna síðuna íslenska. Á því græðir þú í raun og veru ekki neitt en þetta er sambærilegt því að þurfa að greiða ársgjald fyrir að flagga íslenska fánanum fyrir utan hjá þér.
Categories: Spjallborðið

Hvað á staðurinn að heita?

Spjallborðið - 28 Jan 12
http://mbl.is/smartland/stars/2012/01/27...ski_thema/

Mér lýst ekkert á þetta. Alltaf leiðinlegt þegar fólk reynir að hagnast á og nauðga hugverkum annarra, sérstaklega ef það er jafn mikið meistaraverk og hér er á ferð.

En þeir eru greinilega ekki búnir að finna nafn og þá kemur að okkur, hvað mynduð þið kalla svona stað. Verður væntanlega að tengjast myndinni en vera á íslensku.
Mínar hugmyndir:
Stóra Táin
Merktu með núlli
Haltu fokkings kjafti Donny
Categories: Spjallborðið

Sherlock

Spjallborðið - 28 Jan 12


Þetta er besti Sherlockinn. Í þessum þáttum er Sherlock geggjaðari en nokkru sinni fyrr. Útgáfa Roberts Downey jr. er ekkert miðað við þennan hér.
Í þessum þáttum er búið að nútímavæða hann. Sögusviðið er London á okkar tímum.
Fyrir nokkru horfði ég á fyrstu seríuna sem eru 3 þættir og var að byrja á annarri. Fyrsti þátturinn sprengdi á mér heilann.

Ekki skemmir svo fyrir að Martin Freeman sem lék í breska Office og Hitchiker guide er Dr. Watson

Quote:Sherlock is a British television series that presents a contemporary update of Sir Arthur Conan Doyle's Sherlock Holmes detective stories. It was created by Steven Moffat and Mark Gatiss, and stars Benedict Cumberbatch as Sherlock Holmes and Martin Freeman as Doctor John Watson. After an unbroadcast pilot in 2009, the first series of three 90-minute episodes was transmitted on BBC One and BBC HD in July and August 2010. A second series of three episodes premiered on BBC One on 1 January 2012. A third series has been commissioned and will reportedly air in 2013.
Þessir þættir eru með því besta sem ég hef séð og það er hægt að horfa á þá alla hér:
http://watchseries.eu/serie/sherlock
Categories: Spjallborðið

Community

Spjallborðið - 28 Jan 12
http://gorillavid.com/cna/hwyfieqojknc

ÞETTA ER FYNDNASTI ÞÁTTUR SEM ÉG HEF SÉÐ. ENDIRINN ER HELLAÐUR!!!!!
Categories: Spjallborðið